Turnitin er ritskimunarforrit sem kennarar geta notað í Canvas til að skoða samsvörun í verkefnaskilum. Smelltu á eftirfarandi kafla hér að neðan.
Setja Turnitin upp í Canvas
Þú getur tengt Turnitin við verkefni í Canvas þannig að verkefnaskil nemenda fari sjálfkrafa í ritskimun.
- Opnaðu Canvas og veldu viðeigandi námskeið
- Veldu Verkefni í valmyndinni til vinstri
- Smelltu á + Verkefni efst til hægri til að búa til nýtt verkefni

- Undir Tegund skila velur þú:
- Á netinu
- Upphlaðnar skrár
- Undir Ritskimun velur þú Turnitin. Þá birtast stillingar Turnitin.
Undir Store submissions in þarftu að velja hvernig verkefnaskil eru vistuð í Turnitin:
- Standard paper repository – veldu þetta fyrir lokaskil verkefna
- Do not store paper – veldu þetta fyrir prufuskilahólf
Aðrar stillingar Turnitin þarftu ekki að breyta.
- Kláraðu að stilla verkefnið eins og við á, meðal annars skiladag. Smelltu síðan á Vista.

Skoða gervigreindarsamsvörun
Turnitin getur birt sérstaka skýrslu sem sýnir texta sem kerfið metur að mögulega hafi verið skrifaður með aðstoð gervigreindar.
Athugið: Gervigreindarsamsvörun birtist aðeins fyrir verkefni sem eru skrifuð á ensku.
- Opnaðu samanburðarskýrsluna
- Opnaðu verkefnið í SpeedGrader og smelltu á prósentutöluna sem birtist við verkefnaskil stúdentsins
- Samanburðarskýrslan opnast þá í Turnitin Feedback Studio

- Opnaðu gervigreindarskýrsluna
- Smelltu á rauðu prósentuna í stikunni hægra megin til að opna ítarlegri sambanburðarskýrslu
- Smelltu á bláu AI-prósentuna til að opna gervigreindarskýrsluna

- Skoðaðu niðurstöðurnar
Í skýrslunni er texti sem Turnitin metur að mögulega hafi verið skrifaður með aðstoð gervigreindar auðkenndur með lit.

Athugið: Gervigreindarsamsvörun er vísbending en ekki staðfesting á því að texti hafi verið skrifaður með gervigreind. Gervigreind kann til dæmis að hafa verið notuð við yfirferð á málfari og stafsetningu eða á annan hátt við textagerð.