Áður en þú byrjar
Áður en þú notar gervigreind í verkefnum skaltu kynna þér Leiðbeinandi stefnu um ábyrga notkun gervigreindar við Háskólann á Akureyri. Farðu síðan yfir námskeiðslýsinguna á Canvas og athugaðu hvort og hvernig gervigreind er leyfileg — hvað má nota hana í og með hvaða hætti.
Mikilvægt: Gervigreindartól eins og Copilot, ChatGPT, Claude eða Gemini geta verið öflug hjálpartæki við undirbúning ritgerðarvinnu en ekki til að gera heimildaleit.
Hér eru nokkur skref um hvernig þú getur notað gervigreind til að skipuleggja og þróa verkefnið þitt:
1. Móta rannsóknarspurningu
Ef þú ert með grófa hugmynd um efni ritgerðarinnar geturðu beðið gervigreindina að hjálpa þér að:
- Breyta almennri hugmynd í sértækari spurningu
- Orða rannsóknarspurningu skýrar
Dæmi:
"Ég vil skrifa ritgerð um áhrif hreyfingar á andlega heilsu. Getur þú hjálpað mér að þróa góða rannsóknarspurningu?"
2. Greina lykilhugtök og finna leitarorð
Til að skipuleggja heimildaleit er gott að skilgreina hugtök og finna samheiti til að finna leitarorð sem hægt er að nota í leit í gagnasöfnum. Gervigreindin getur hjálpað þér með:
- Að greina lykilhugtök í rannsóknarspurningunni.
- Að finna samheiti eða skyld hugtök sem geta komið að gagni í leit að fræðilegum greinum.
- Að skilgreina hugtök sem þú ert ekki viss um.
Dæmi:
"Getur þú gefið mér lykilhugtök og samheiti fyrir rannsóknarspurninguna: Hvernig hefur hreyfing áhrif á kvíða hjá ungu fólki?"
3. Búa til leitarstreng
Gervigreindin getur aðstoðað við að búa til leitarstreng fyrir leit í gagnasafn.
Dæmi:
„Mig vantar leitarstreng fyrir leit í Cinahl. Rannsóknarspurningin er: Er fylgni milli daglegrar hreyfingar (mínútur á dag) og skora á vellíðanarkvarða hjá einstaklingum á aldrinum 18–30 ára?“
4. Gera heimildaleit í gagnasöfnunum Scite.ai og ha.leitir.is
Fyrir áreiðanlega heimildaleit er best að nota scite.ai eða ha.leitir.is, sem veita traustar og fræðilegar heimildir fyrir rannsóknarvinnu.
- Scite.ai er gagnasafn þar sem hægt er að leita bæði með því að spyrja spurninga (prompta) en einnig með því að gera hefðbundna leit með hugtökum. Gagnasafnið hjálpar rannsakendum að meta gæði og samhengi heimilda með því að sýna hvernig niðurstöður eru notaðar í öðrum fræðigreinum. Til að nota Scite.ai þarf fyrst að taka námskeið sem er aðgengilegt hér, Innritun í Scite.ai námskeiðið.
- ha.leitir.is er með rannsóknaraðstoð knúna af gervigreind. Þar er hægt að spyrja spurninga á venjulegu máli og fá upp að fimm skjöl sem geta svarað spurningunni og hjálpað þér að hefjast handa í heimildavinnu. Til að nota þjónustuna þarf að skrá sig inn á ha.leitir.is með rafrænum skilríkjum.
Aðstoð frá bókasafninu
Starfsfólk bókasafnsins aðstoðar notendur við:
- Notkun gervigreindar við að undirbúa verkefnavinnu og framkvæma heimildaleit