Markmið þessarar hugverkastefnu er að:
- Tryggja skýrleika varðandi eignarhald á hugverkum sem verða til innan veggja Háskólans á Akureyri
- Virkja og styðja við hagnýtingu hugverka til hagsbóta fyrir bæði háskólann og starfsmenn með aðstoð og ráðgjöf. Vernda hagsmuni Háskólans, starfsmanna og stúdenta þegar kemur að hagnýtingu hugverka
- Gera Háskólann á Akureyri að traustum samstarfsaðila atvinnulífs
- Stuðla að samfélagslegri og siðferðilegri ábyrgð
Hugverkastefnan gegnir lykilhlutverki í að styðja við:
- Rannsóknir og þróun hjá Háskólanum á Akureyri
- Nýsköpun við Háskólann á Akureyri
- Samfélagslegt hlutverk Háskólans
- Stefnu Háskólans í málefnum norðurslóða
Hlutverk Háskólans á Akureyri
Í lögum um háskóla, nr. 63/2006, er kveðið á um að háskóli sé sjálfstæð menntastofnun sem sinnir kennslu, rannsóknum, varðveislu þekkingar, þekkingarleit og sköpun á sviðum vísinda, fræða, tækniþróunar eða lista. Þá kveða lögin einnig á um að hlutverk háskóla sé að stuðla að sköpun og miðlun þekkingar og færni til nemenda og samfélagsins alls.
Háskólinn á Akureyri er lifandi afl á norðurslóðum með öflugu rannsóknarsamfélagi og traustum rannsóknarinnviðum og -þjónustu. Gildi Háskólans á Akureyri eru framsækni, jafnrétti, sjálfstæði og traust. Gildin skapa umhverfi þar sem hugmyndir verða að hugverkum og nýsköpun leiðir til samfélagslegra umbóta. Við háskólann mætast framsækin hugsun, vísindi og hugrekki til að skapa raunveruleg tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki.
Gildissvið
Hugverkastefna þessi gildir um allt starfsfólk Háskólans á Akureyri sem koma að sköpun hugverka í tengslum við starfsemi háskólans. Til starfsfólks telst allt starfslið háskólans sem hlýtur greiðslur frá skólanum, þar með talið akademískir starfsmenn, gestafræðimenn og gestakennarar, svo og stúdentar sem hljóta greiðslur frá skólanum, hvort heldur sem er í formi launa, styrkja, þóknunar eða annarra sambærilegra greiðslna og aðrir starfsmenn sem taka þátt í rannsóknum eða þróunarverkefnum á vegum skólans. Stefnan gildir jafnt um hugverk sem einn eða fleiri standa saman að. Þau réttindi og skyldur sem kveðið er á um í stefnunni, vegna hugverka sem sköpuðust á meðan starfi eða námi stóð, haldast eftir að látið hefur verið af starfi hjá skólanum eða námi hefur verið lokið.
Þegar þriðji aðili fjármagnar rannsóknir við Háskólann á Akureyri, í heild eða að hluta, kann að reynast sanngjarnt að vikið sé frá ákvæðum hugverkastefnunnar að einhverju leyti. Slík frávik skulu byggjast á samningi milli háskólans og viðkomandi aðila þar sem kveðið er á um réttindi og skyldur aðila vegna hugverka sem kunna að verða til við verkefnið. Mikilvægt er að starfsmenn sem taka þátt í slíkum verkefnum séu upplýstir um frávik frá stefnunni og að hagsmunir þeirra séu tryggðir í samningum.
Sérstakar reglur gilda um verkefni sem unnin eru með styrkjum frá utanaðkomandi aðilum. Starfsmönnum ber að tilkynna til rektors um efni slíkra samninga.
Yfirstjórn, ábyrgð og valdframsal rektors í hugverkamálum
Rektor fer með ákvörðunarvald í málefnum er varða hugverk og hagnýtingu þeirra innan Háskólans á Akureyri. Rektor getur framselt ákvörðunarvald sitt í einstökum málum eða málaflokkum varðandi hugverk og hagnýtingu þeirra til annarra stjórnenda, deilda eða starfsmanna innan háskólans. Slíkt framsal skal ávallt vera skriflegt og tilkynnt á skýran hátt, til dæmis með birtingu í skipuriti eða á vef háskólans, til að tryggja skýrleika og ábyrgð.
Auðna
Auðna – Tæknitorg er tækniyfirfærsluskrifstofa í eigu íslenskra háskóla og rannsóknastofnana, þar á meðal Háskólans á Akureyri. Auðna veitir aðstoð við m.a. greiningu, vernd og hagnýtingu hugverka, hefur umsjón með umsóknaferli einkaleyfa og annarra hugverkaréttinda, sinnir viðskiptagreiningu og markaðssetningu hugverka og hefur milligöngu um samstarf, leyfisveitingar og samninga við sprotafyrirtæki og aðra hagaðila.
Hugverk
Í stefnu þessari merkir hugtakið hugverk, uppfinningu sem unnt er að fá einkaleyfi fyrir samkvæmt lögum um einkaleyfi, nr. 17/1991, og hins vegar nýjungar sem m.a. eru uppgötvanir, vísindakenningar, verkþekking, hönnun og annað sem ekki fellur undir hugtakið uppfinning í skilningi laga um einkaleyfi, nr. 17/1991. Er þá átt við nýungar sem hafa komið fram og eru þáttur í starfi starfsfólks háskólans. Sama gildir um uppfinningar eða hagnýtanlegar rannsóknaniðurstöður sem fram koma við notkun á auðlindum háskólans, þ.m.t. fjármunum, húsnæði, efni, tækjabúnaði og annarri aðstöðu, nema um annað sé samið. Til annarra hagnýtanlegra rannsóknarniðurstaðna í skilningi stefnunnar teljast ýmis hugverk sem njóta verndar samkvæmt sérlögum. Þar má nefna hönnun í skilningi laga um hönnun, og viðskiptaleyndarmál, nr. 46/2001, þar með talin verkþekking (e. know-how), sem nýtur verndar samkvæmt lögum um viðskiptaleyndarmál, nr. 131/2020. Einnig falla hér undir höfundaréttarvarin verk samkvæmt ákvæðum höfundalaga, nr. 73/1972. Undanþeginn er höfundaréttur að hefðbundnu kennsluefni, fræðigreinum og bókum sem starfsmaður skapar að eigin frumkvæði og án verulegs stuðnings frá háskólanum umfram almenna starfsaðstöðu. Hafi háskólinn lagt fram umtalsvert fjármagn, tækjabúnað eða starfskrafta til gerðar slíks efnis skal gera um það sérstakan samning. Slík undantekning nær ekki til hugbúnaðar, en um hann gildir sérregla 42. gr. b. höfundalaga.
Réttur til uppfinninga
Starfsmenn teljast upphaflega eigendur uppfinninga sem þeir koma fram með í starfi sínu eða námi, enda er það meginregla samkvæmt 3. gr. laga nr. 72/2004, um uppfinningar starfsmanna. Samkvæmt ákvæðum laga nr. 72/2004 getur Háskólinn á Akureyri, krafist framsals á réttinum yfir uppfinningunni til sín, enda sé hagnýting hennar á starfssviði skólans eða tengist tilteknu verkefni sem unnið er innan skólans. Að öðru leyti fer um rétt starfsmanna til uppfinninga eftir áðurnefndum lögum, nema um annað hafi verið samið.
Starfsmaður skal gæta trúnaðar um hugverkið og birta það ekki opinberlega (hvorki í ræðu né riti) fyrr en háskólinn hefur veitt samþykki fyrir birtingu, enda er slíkur trúnaður nauðsynlegur til að tryggja vernd hugverksins, sérstaklega nýnæmi þess.
Tilkynningarskylda og hagnýting
Samkvæmt 5. gr. laga um uppfinningar starfsmanna nr. 72/2004 er starfsmönnum skylt að tilkynna atvinnurekanda um uppfinningu án ástæðulauss dráttar. Skylda þessi felur í sér að tilkynning skal berast eins fljótt og auðið er eftir að uppfinning hefur orðið til. Tilkynning er mikilvæg til að tryggja tímanlega vernd hugverksins og hámarka mögulegan ávinning fyrir bæði mann og háskólann, meðal annars með því að unnt sé að veita viðeigandi ráðgjöf og stuðning á frumstigi.Tilkynning skal gerð í gegnum þar til gert svæði á heimasíðu skólans eða Auðnu.
Starfsmaður ber ábyrgð á að veita allar nauðsynlegar upplýsingar um hugverkið, þ.m.t. lýsingu á eðli þess, hugsanlega nýnæmisþætti og mögulega hagnýtingu.
Auðna annast fyrstu greiningu á tilkynntum hugverkum og metur einkaleyfishæfi og/eða hagnýtingargildi þeirra innan 30 daga frá móttöku tilkynningar. Að lokinni greiningu skal Auðna leggja fram rökstudda tillögu til háskólans um næstu skref, þar á meðal hvort ráðlagt sé að sækja um einkaleyfi eða önnur hugverkaréttindi, eða hvort frekari greiningu þurfi áður en ákvörðun er tekin um hagnýtingu.
Réttur stúdenta til að tilkynna og hagnýta hugverk
Stúdentar eru ekki bundnir tilkynningarskyldu um hugverk sín samkvæmt lögum um uppfinningar starfsmanna nr. 72/2004 eða öðrum sérlögum, ólíkt því sem gildir um starfsfólk Háskólans á Akureyri. Engu að síður er nemendum heimilt að tilkynna háskólanum um hugverk sem þeir hafa skapað, með það fyrir augum að fá þau vernduð og hagnýtt.
Háskólinn tekur afstöðu til tilkynntra hugverka nemenda og ákveður næstu skref innan þriggja mánaða frá móttöku tilkynningar. Þar á meðal er ákvörðun um hvort leita skuli eftir aðstoð Auðnu-Tæknitorgs. Háskólinn skal veita nemanda rökstutt svar um afstöðu sína.
Sé ákveðið að hagnýta hugverkið, skal gerður sérstakur samningur milli nemandans og háskólans þar sem kveðið er skýrt á um réttindi og skyldur beggja aðila, þar á meðal um eignarhald, kostnaðarskiptingu og skiptingu ágóða.
Hagnýting
Háskólinn á Akureyri í samvinnu við Auðnu, skal taka afstöðu til mögulegrar hagnýtingar á framkominni uppfinningu innan þriggja mánaða frá móttöku upphaflegrar tilkynningar til Auðnu. Háskólinn skal veita rannsakanda/starfsmanni svar sem fyrst og aldrei síðar en innan þriggja mánaða hvernig brugðist skuli við þeim. Starfsmaður skal leggja fyrir nefndina fullnægjandi upplýsingar um t.d. fjármögnun, þar á meðal hvaða styrkir, samningar eða aðrir fjármögnunarþættir tengjast þróun þess og hvort fjármögnun geti haft áhrif á réttindi eða skyldur háskólans gagnvart þriðja aðila. Ákveði háskólinn að hagnýta uppfinningu, svo sem með umsókn einkaleyfis, ber skólinn þann kostnað sem hlýst af því.
Starfsmaður getur óskað eftir að eignast rétt á uppfinningu ákveði háskólinn að sækja ekki um einkaleyfi, fellur frá einkaleyfaumsókn eða hyggst ekki hagnýta hugverk með öðrum hætti. Starfsmaður tekur þá við öllum kostnaði við öflun einkaleyfis og öðrum kostnaði sem hlýst af hagnýtingu uppfinningar.
Ef háskólinn ákveður að krefjast ekki réttar til hugverks eða afsalar sér rétti til þess eftir að hafa krafist hans fellur allur réttur til hugverksins til starfsmanns. Í slíkum tilvikum getur háskólinn óskað eftir endurgreiðslu á þeim kostnaði sem hann hefur þegar lagt út vegna hugverksins, til dæmis vegna umsókna um einkaleyfi sbr. 8. gr. laga um uppfinningar starfsmanna nr. 72/2004.Fresta má greiðslum þar til hreinar tekjur af uppfinningu koma til.
Háskólinn á Akureyri, starfsmenn hans og samstarfsaðilar hafa sameiginlega hagsmuni af því að nafn og merki þeirra séu notuð á viðeigandi hátt í tengslum við hugverk og hagnýtingu þess. Aðilar mega nota nafn og merki hvers annars í þessum tilgangi, nema annað sé samið.
Fjárhagsleg réttindi vegna hagnýtingar
Gerður skal samningur um fjárhagsleg réttindi vegna hagnýtingar. Samningur skal vera á milli háskólans og starfsmanns. Samningurinn skal skýra í hvaða mæli starfsmaður framselur fjárhagsleg réttindi til Háskólans á Akureyri. Við framsal öðlast skólinn rétt til að semja við þriðja aðila um þau.
Þegar aðrar stofnanir, svo sem háskólar eða rannsóknastofnanir, hafa komið að uppfinningu, skal leita samninga við þá aðila áður en Háskólinn á Akureyri gengur til samninga við þriðja aðila.
Skipting fjárhagslegs ágóða
Nettóhagnaður til skiptingar er tekjur af hagnýtingu hugverks eftir að allur beinn kostnaður Háskólans á Akureyri hefur verið dreginn frá, þar með talinn kostnaður vegna þróunar, einkaleyfisumsókna, viðhalds hugverkaréttinda og annarra útgjalda sem tengjast hagnýtingu. Arðurinn skal greiðast til háskólans, sem sér um að úthluta honum hlutfallslega til viðkomandi aðila.
Fjárhagsleg réttindi vegna hagnýtingar hugverka eru ákvörðuð með samningi við Háskólann á Akureyri. Þar er kveðið á um framsal réttinda til Háskólann á Akureyri og skiptingu hagnaðar. Við framsal öðlast skólinn rétt til að semja við þriðja aðila um réttindin.
Skipting fjárhagslegs ágóða byggist á eftirfarandi meginreglum:
- Starfsmaður: 35% (séu starfsmenn fleiri en einn, skiptist hluturinn jafnt á milli þeirra nema um annað sé samið).
- Rannsóknarstarf starfsmanns: 10%
- Deild eða starfseining starfsmanns: 10%
- Háskólinn á Akureyri: 45% Samningsbundnar greiðslur til Auðnu dragast frá óskiptum hluta skólans.
Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að víkja frá framangreindri skiptingu hagnaðar í sérstökum tilvikum til að tryggja sanngjarna og skilvirka hagnýtingu hugverksins. Slík ákvörðun skal byggja á heildarmati á aðstæðum, þar á meðal vinnuframlagi starfsmanns og þeirri aðstöðu og fjármagni sem háskólinn hefur lagt til. Allar slíkar ákvarðanir skulu rökstuddar og kynntar starfsmanni.
Greiðslur til starfsmanna skulu framkvæmdar árlega í samræmi við tekjur sem hlotist hafa af hagnýtingu hugverksins.
Stofnun sprotafyrirtækja
Um aðild Háskólans á Akureyri að hlutafélögum og sprotafyrirtækjum fer skv. lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008. Eignarhald skólans skal að jafnaði vera 10%. Sé sprotafyrirtæki stofnað með aðkomu annarra rannsóknarstofnanna skal samanlagður eignarhlutur stofnanna að jafnaði vera 10%. Framlag skólans til stofnunar sprotafyrirtækja er almennt ekki í formi reiðufjár.
Starfsmenn sem koma að stofnun sprotafyrirtækis í samvinnu með Háskólanum á Akureyru vinna að uppbyggingu fyrirtækisins í samráði við háskólann.
Auðna sér um að gera einkaleyfisnytjasamninga við sprotafyrirtækið, á grundvelli samstarfssamnings við skólann. Einkaleyfisnytjasamningar geta verið með undirleyfi („sublicence“). Í einkaleyfisnytjasamningi skal einnig útfæra m.a. kostnaðarskiptingu, eignarhlut og framlag aðila.
Nytjaleyfissamningur skal m.a. tiltaka að sprotafyrirtæki taki við umsjón einkaleyfis og greiði þann kostnað sem fellur til vegna þess, s.s. vegna umsóknar, veitingu einkaleyfis, árgjöld einkaleyfis og vegna kostnaðar við að verja einkaleyfi, hvort sem er gagnvart einkaleyfisyfirvöldum eða dómstólum. Háskólanum á Akureyri er heimilt að nýta uppfinninguna við rannsóknir og kennslu eftir að leynd hefur verið afnumin.
Upplýsingagjöf og þjálfun
Háskólinn á Akureyri skal tryggja að starfsfólk fái upplýsingar um hugverkastefnuna við upphaf starfs eða náms og hafa hana aðgengilega á heimasíðu skólans.
Boðið skal upp á þjálfun í tengslum við hugverkavernd, skráningu og nýtingu hugverka, t.d. í formi MasterClass vinnustofu sem Auðna stendur fyrir. Ráðstefnur og vinnustofur skulu haldnar reglulega til að auka vitund og færni í þessum efnum. Auðna hefur í samráði við Háskólann á Akureyri umsjón með fræðslu starfsfólks skólans um hugverkarétt og hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna og getur ráðlagt rannsakendum varðandi ferli við tilkynningu hugverka.
Gildistaka og endurskoðun
Hugverkastefna þessi tekur gildi frá og með 1. nóvember 2026 og skal endurskoðuð reglulega, að minnsta kosti á þriggja ára fresti, til að tryggja að hún taki mið af nýjustu lögum og reglum sem og breytingum á starfsemi háskóla. Rektor háskólans á Háskólinn á Akureyri ber ábyrgð á endurskoðun stefnunnar og skal leggja fram tillögur um breytingar til samþykktar af háskólaráði. Breytingar skulu kynntar starfsmönnum með formlegum hætti og birtar opinberlega á innri vef skólans.
Samþykkt á 489. fundi háskólaráðs Háskólans á Akureyri, 29. október 2026