Fundur var haldinn fimmtudaginn 27. ágúst 2026 í funarherberginu Norðurborg kl. 13:30.
Rektor Áslaug Ásgeirsdóttir setti fund kl. 13:31.
Mætt voru auk hennar:
Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Helena Sigurðardóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs
Bjarni M. Jónsson fulltrúi Háskólaráðs
Fjarverandi:
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs
Einnig mætt:
Sindri S. Kristjánsson ritari háskólaráðs sem ritar fundargerð
Gestir:
Jón Steindór Árnason sviðsstjóri fjármála og reksturs
Freyr Baldursson verkefnastjóri reikningshalds og fjármálagreininga
Rektor kynnti dagskrá.
1. Fjármál og rekstur
2601068
Jón Steindór Árnason og Freyr Baldursson sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.
Rekstur háskólans það sem af er ári gengur með ágætum. Rekstrarstaðan samanborið við rekstraráætlun ársins er jákvæð, en að teknu tilliti til orlofsskuldbindinga er fyrirséð að einhver halli verði á rekstrinum í lok árs. Rekstur fræðasviða gengur vel, rekstur stoðþjónustu og stjórnsýslu er í jafnvægi. Rekstur stofnana með sértekjur stendur frammi fyrir samskonar áskorunum og áður.
Rætt var um rannsóknastarfsemi í framsetningunni, en nýverið var tekin upp ný leið til að setja fram stöðu rekstrar háskólans. Útskýringar voru veittar, en undir þann lið fara t.d. rannsóknareikningar, kostnaður við rannsóknamisseri o.s.frv. Rætt var um stöðu stofnanna með sértekjur og framtíðarhorfur þeirra.
Þá var rætt um stöðu húsnæðismála og greint frá fundi sem rektor og sviðsstjóri fjármála og rekstrar áttu nýverið með Framkvæmdasýslu – Ríkiseignum (FSRE).
2. Erindi SHA til háskólaráðs
2608097
Rektor gerði grein fyrir erindi SHA til háskólaráðs þar sem óskað er eftir framlagi í fræðslusjóð á vegum SHA. Tilgangur sjóðsins er að styrkja stúdenta til verkefna sem tengjast námi þeirra, fræðslu, ráðstefnusókn eða störfum í þágu SHA. Einnig er sjóðnum ætlað að gegna hlutverki einskonar jöfnunarsjóðs og gefa stúdentum sem stunda nám utan höfuðborgarsvæðisins tækifæri til að sækja sér þekkingu og reynslu til jafns við önnur.
Rakel Rún Sigurðardóttir kynnti erindið og svaraði spurningum. Að því loknu vék Rakel af fundinum.
Háskólaráð tekur jákvætt í erindið og fagnar framtakinu. Háskólaráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar háskólans 2027.
3. Heiðursdoktorsnafnbót
2606138
Rektor gerði grein fyrir umsögn heiðursdoktorsnefndar sem skipuð var á 483. fundi háskólaráðs sbr. 13. gr. reglna um veitingu heiðursdoktorsnafnbótar við Háskólann á Akureyri. Umsögnin er jákvæð og er fallist á tillögu auðlindadeildar heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs dags. 11. febrúar 2026.
Háskólaráð samþykkir útnefningu heiðursdoktors í samræmi við tillögu auðlindadeildar heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs dags. 11. febrúar 2026.
4. Erindi Góðvina HA til háskólaráðs
2608098
Tekið fyrir erindi starfskrafts Góðvina Háskólans á Akureyri þar sem óskað er eftir tilnefningu háskólaráðs í stjórn Góðvina starfsárið 2026-2027.
Háskólaráð felur rektor að tilnefna fulltrúa háskólaráðs í stjórn Góðvina HA. Þá felur háskólaráð rektor ræða við stjórn Góðvina HA um tengsl félagsins og háskólans.
5. Stofnun Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri
2410007
Rektor gerði háskólaráði grein fyrir stöðu Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar við Háskólann á Akureyri í ljósi skipulagsbreytinga á stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans sem gengu í garð 1. ágúst sl.
Háskólaráð Háskólans á Akureyri óskar eftir að reglur um Stofnun Vilhjálms Stefánssonar verði uppfærðar til samræmis við nýtt skipurit Háskólans á Akureyri og að stjórnskipulag stofnunarinnar verði endurskoðað.
6. Bókfærð mál til samþykktar
- Skipan dómnefndar 2026-2028 2608049 Frestað
- Skipan jafnréttisráðs 2026-2028 2606024 Frestað
- Skipan umhverfisráðs 2026-2028 2606094 Samþykkt
- Skipan siðanefndar 2026-2028 20260626 Samþykkt
- Skipan gæðaráðs 2026-2028 2606006 Samþykkt
- Skipan öryggisnefndar 2605035 Samþykkt
- Skipan rannsóknamisserisnefndar 2606005 Samþykkt
7. Til fróðleiks
- Mikilvægi skólastjórnunar í dreifðari byggðum
- Hvernig leysum við flókin vandamál?
- Er gervigreind framför í þágu almennings?
- Hálendi Íslands gefur innsýn í lífi á Mars
- Tveir nýir sviðsstjórar í stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans
- Líffræðileg fjölbreytni á norðurslóðum áherslumál til framtíðar
- Rúmlega 30 milljón króna rannsóknastyrkur til Háskólans á Akureyri
- Samskipti lögreglu á vettvangi
- Hreiðar Þór hlýtur viðurkenningu fyrir sjálfbærni í kennslu
- Níu hljóta framgang í starfi
- Ný alþjóðleg inngangsbók í félagsfræði eftir Guðmund Oddsson og félaga
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:45.