ÁVARP REKTORS, ÁSLAUGAR ÁSGEIRSDÓTTUR, Á háskólahátíð HÁSKÓLANS Á AKUREYRI, 19. og 20. júní 2026

Kæru kandídatar, aðstandendur, heiðursgestur Háskólahátíðar HA 2026, samstarfsfólk og Góðvinir háskólans.
Velkomin á Háskólahátíð Háskólans á Akureyri 2026.
Í dag er gleðidagur. Við fögnum árangri ykkar sem hefur kostað mikla vinnu og þrautseigju. Nú hafið þið náð þeim áfanga að ljúka háskólanámi og skiptir engu hvort þetta sé ykkar fyrsti áfangi í námi eða sjá fjórði. Fyrir hönd Háskólans á Akureyri óska ég ykkur, og aðstandendum ykkar, innilega til hamingju með brautskráninguna.
Við fögnum þessum áfanga á tímum sem einkennast af talsverðri óvissu og óöryggi. Stríðsátök víða um heim hafa áhrif langt út fyrir landamæri þeirra ríkja sem í hlut eiga. Hækkandi orkuverð, efnahagsleg óvissa og síbreytilegt alþjóðlegt umhverfi hafa áhrif, einnig hér á litla Íslandi. Á sama tíma stendur íslenskt samfélag frammi fyrir stórum ákvörðunum um framtíðina og hvernig við viljum byggja upp landið okkar á komandi árum. Inn í þetta fléttast sú staðreynd að við búum á þessari litlu og dreifbýlu, eyju þar sem náttúran minnir oft á mátt sinn, hvort sem það eru eldsumbrot, jarðhræringar eða aflabrestur. Það er ekki að ástæðulausu að mottó Íslendinga er „þetta reddast“.
Þó að óvissan sé oft óþægileg þá skulum við ekki gleyma að aukin menntun og þekking eykur skilning okkar á henni. Við skiljum einfaldlega betur flækjustig samfélagsins hér á Íslandi og víðar þegar við kunnum meira. Hlutverk háskóla er ekki að útrýma óvissu heldur að kenna fólki að takast á við hana. Með þekkingu, gagnrýninni hugsun og reynslu öðlumst við sjálfstraust til að taka upplýstar ákvarðanir jafnvel þar sem enn ríkir óvissa.
Þegar tekist er á um málefni dagsins er auðvelt að hrífast með afdráttarlausum skoðunum og sterkri sannfæringu annarra. Í hita leiksins getur líka verið freistandi að draga skýrar línur milli „okkar“ og „hinna“, mála andstæðinga í dekkri litum en raun ber vitni og gleyma þannig því sem sameinar okkur.
Það má aldrei gleyma því að áður en við erum stúdentar, Íslendingar, kjósendur, sérfræðingar eða stjórnendur, þá erum við öll manneskjur. Að vera manneskja felur í sér að takast á við óvissu, gera mistök, skipta um skoðun – og auðvitað að læra af reynslunni. Sem manneskjur þurfum við líka að temja okkur að sýna öðrum virðingu og mildi þegar við þurfum að leysa vandamál annarra eða þegar okkur greinir á.
Það er von mín að háskólanám ykkar hafi ekki aðeins aukið þekkingu heldur einnig dýpkað skilning. Ég vona að þið kunnið nú að greina kjarnann frá hisminu og getið metið staðreyndir og fullyrðingar á upplýstan hátt. Þetta hjálpar þegar þið þurfið að takast á við vafaatriði og óvissu af festu, yfirvegun og heilindum.
Þekking er mikilvæg, en hún ein og sér nægir ekki. Háskólanám snýst ekki aðeins um að læra námsefnið, heldur um leið að tileinka sér aðferðir þeirra námsleiða sem þið völduð. Þið hafið lært að greina gögn, meta heimildir, leysa verkefni, taka faglegar ákvarðanir og klára það sem þið byrjuðuð á. Þið hafið öðlast verkfæri til að skilja heiminn og hafa áhrif á hann.
Stúdentar Háskólans á Akureyri hafa lært fjölbreyttar aðferðir. Sum ykkar hafa lært að hlúa að sjúklingum og veita viðeigandi meðferð. Önnur hafa lært hvernig tryggja skuli öryggi við störf lögreglu. Enn önnur hafa tileinkað sér nýjustu kennsluaðferðir. Öll hafið þið þó lært rannsóknaraðferðir, skrif akademískra ritgerða og miðlun kunnáttu og upplýsinga.
Nú þegar þið eruð orðin brautskráðir HA-ingar mun atvinnulífið yfirleitt ekki hafa mikinn áhuga á þeim aðferðum sem þið notið. Það er einfaldlega ætlast til þess að þið kunnið til verka, að þið getið beitt þekkingu ykkar í verki og skilað árangri. Þar felst hin raunverulega prófraun menntunar.
Það er þó eitt sem ég vona að þið haldið fast í eftir brautskráninguna – forvitnina. Heimurinn breytist hratt og það sem hefur dugað hingað til mun ekki endilega duga á morgun. Haldið áfram að lesa, hlusta, læra, spyrja spurninga og leita nýrrar þekkingar. Menntun lýkur ekki við brautskráningu – hún heldur áfram alla ævi.
Til að ná árangri í lífinu þarf hæfni, vinnusemi og úthald. En það skiptir líka máli að vera á réttum stað á réttum tíma, mæta fólki sem trúir á mann og fá tækifæri sem ekki voru augljós til árangurs. Þegar þið horfið til baka munuð þið eflaust sjá að eitthvað slíkt hefur haft áhrif á hvar þið eruð stödd í dag. Þetta hefur hjálpað ykkur til að ná árangri.
Það er undir ykkur komið hvernig þið bregðist við þeim tækifærum sem ykkur bjóðast. Metið tækifærin sem verða á vegi ykkar og hafið hugrekki til að grípa þau sem skipta máli. En einnig er gott að vita hvenær er gott að segja nei. Það er stundum nauðsynlegt.
Þegar vel gengur, munið að sýna auðmýkt og samkennd. Fólkið í kringum ykkur er sjaldnast síður hæfileikaríkt en þið. Stundum hefur það einfaldlega ekki fengið sömu tækifæri eða ekki notið sömu heppni og þið.
Kæru gestir.
Í ár spannar Háskólahátíðin tvo daga og erum við með fjórar athafnir. Lengst af hefur sú hefð verið við lýði að bjóða einum heiðursgesti til hátíðarinnar. Eftir að heiðursgestur síðasta árs flutti sömu ræðuna þrisvar fannst okkur tæpast sanngjarnt að biðja einn einstakling um að verja tveimur dögum með okkur og flytja sömu ræðuna fjórum sinnum.
Því eru í ár tveir heiðursgestir, hvor sinn daginn. Annar fyrir Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið og hinn fyrir Hug- og félagsvísindasvið. En við létum ekki þar við sitja í breytingum. Brautskráðir stúdentar Háskólans á Akureyri hafa víða látið að sér kveða í samfélaginu. Okkur þótti því við hæfi að bjóða tveimur fyrrverandi stúdentum aftur heim í háskólann sinn til að deila reynslu sinni og hvetja ykkur til dáða á þessum tímamótum. Ég er þakklát Baldvini M. Hermannssyni og Sylvíu Briem Friðjónsdóttur fyrir að hafa tekið svo vel í að vera hér með okkur.
Nú í júní brautskrást 639 kandídatar og er það met. Þessi tala er til dæmis 7,8% hærri en fyrir ári. Einnig brautskráðust sex kandídatar frá Háskólasetri Vestfjarða í athöfn sem haldin var á Hrafnseyri þann 17. júní.
- Athöfn 1: Í þessari athöfn brautskráum við 119 úr Hjúkrunarfræðideild og 46 frá Iðjuþjálfunarfræðideild. Það er gaman að segja frá því að í hópi 63 hjúkrunarfræðinga sem brautskrást hér í dag er 1300asti hjúkrunarfræðingurinn sem við höfum brautskráð frá upphafi. Í hópnum er líka 500asti iðjuþjálfarinn.
- Athöfn 2: Í þessari athöfn brautskrást 19 kandídatar frá Auðlindadeild, 97 frá Viðskiptadeild og svo fjórir frá Háskólasetri Vestfjarða.
- Athöfn 3: Í þessari athöfn brautskrást 167 úr Kennaradeild og eru 96 þeirra að fá leyfisbréf til kennslu. Einnig brautskrást 38 úr Lagadeild.
- Athöfn 4: Í þessari athöfn brautskrást 100 úr Félagsvísindadeild, og þar af erum við að brautskrá 72 lögreglumenn sem nú á eftir fá lögreglunúmerin sín með viðhöfn hér í salnum. Einnig brautskrást 47 úr Sálfræðideild og tveir frá Háskólasetri Vestfjarða.
Háskólinn á Akureyri stækkar með hverju árinu. Fyrir það erum við þakklát. Þrátt fyrir þann árangur sem Háskólinn á Akureyri hefur náð undanfarin ár eru íslenskum háskólum almennt þröngar skorður settar fjárhagslega og þurfum við oft að taka erfiðar ákvarðanir sem hafa áhrif á námsúrval. Þrátt fyrir þetta er mikill metnaður, samhugur og áræðni á meðal starfsfólks skólans og fyrir það er ég þakklát.
Kæru kandídatar:
Þið eruð nú hluti af þeim hópi sem ber nafn Háskólans á Akureyri út í samfélagið. Ég er sannfærð um að þið munið gera það vel.
Fyrir hönd kennara og starfsfólks háskólans óska ég ykkur innilega til hamingju með áfangann. Megið þið nýta þekkingu ykkar af ábyrgð, halda áfram að læra, sýna öðrum samkennd og hafa hugrekki til að grípa þau tækifæri sem framtíðin færir ykkur.
Til hamingju og farnist ykkur vel.