486. fundur Háskólaráðs

Fundur var haldinn fimmtudaginn 25. júní 2026 í Norðurborg í gegnum fjarfundabúnað á Teams kl. 13:30 

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor setti fund kl. 13:30.

Mætt voru auk hennar:

Sædís Gunnarsdóttir fulltrúi ráðherra

Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins

Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins

Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta

Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs

Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs í fjarfundi

Einnig mætt:

Sindri S. Kristjánsson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu

Fjarverandi:

Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra

Gestir:

Freyr Baldursson verkefnastjóri reikningshalds og fjármálagreininga

Hólmfríður Lilja Birgisdóttir verkefnastjóri gagnagreininga og fjárhags

Hildur Friðriksdóttir verkefnastjóri og formaður jafnréttisráðs

Silja Jóhannesar Ástudóttir samskiptastjóri

Sólveig María Árnadóttir verkefnastjóri samfélagsmiðla og samskipta

 

Rektor kynnti dagskrá.
 

1. Fjármál og rekstur

2601068
 
Freyr Baldursson og Hólmfríður Lilja Birgisdóttir sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.
 
Freyr og Hólmfríður gerðu grein fyrir rekstrarstöðu háskólans á tímabilinu janúar – maí á rekstrarárinu. Staða fræðasviðanna er með ágætum, fá frávik frá áætlun. Staða stjórnsýslu- og stoðþjónustueininga er í jafnvægi, en ástæður þar á frávikum frá rekstraráætlun eiga sér skýringar í tímamismun á inn komnum tekjum og gjöldum. Staða sértekjueininga er svipuð og greint hefur verið frá á öðrum fundum háskólaráðs á árinu, en vonir standa til að tekjuflæði taki að aukast í þeim tilvikum þar sem slíkt hefur reynst áskorun.
 

2. Fjöldi umsókna um nám við Háskólann á Akureyri 2026-2027

2604050
 
Rektor kynnti fyrir háskólaráði lokaniðurstöðu umsókna um nám við háskólann fyrir haustmisseri 2026. Umsóknum um nám fjölgar 8,5% milli ára, og þar af fjölgar umsóknum um meistaranám um 20%. Í ár var ekki innritað í nám við heimskautarétt þar sem í það nám er innritað annað hvert ár. Nýtt nám í lagareldi hlaut góðar viðtökur en alls bárust 28 umsóknir í þá námsleið.
 
Háskólaráð ræddi niðurstöðurnar og hvað viðvarandi fjölgun umsókna um nám ári frá árs hefur í för með sér fyrir háskólann.
 

3. Staða jafnréttisáætlunar

2408049
Hildur Friðriksdóttir sat fund háskólaráðs undir þessum lið.
 
Háskólaráð fékk kynningu frá formanni jafnréttisráðs Háskólans á Akureyri á stöðu jafnréttismála innan háskólans og stöðu aðgerðaáætlunar jafnréttisáætlunar til 2028.
 
Háskólaráð þakkar formanni jafnréttisráðs fyrir kynninguna.
 

4. Kynning á framsetningu námsframboðs Háskólans á Akureyri

2606106
 
Silja Jóhannesar Ástudóttir og Sólveig María Jónsdóttir sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.
 
Á fundi 485. fundi háskólaráðs óskaði ráðið eftir kynningu á því hvernig staðið væri að því að kynna námsframboð á svokölluðu umsóknartímabili. Silja og Sólveig María gerðu háskólaráði grein fyrir hugmynda- og aðferðafræði sem liggur að baki herferðum háskólans sem miða að því að trekkja að fólk í nám. Þá gerðu þær grein fyrir þeim áskorunum sem markaðs- og kynningarteymið stendur frammi fyrir þegar kemur að þessu verkefni.
 
Háskólaráð þakkar Silju Jóhannesar Ástudóttir og Sólveigu María Jónsdóttir fyrir kynninguna.
 

5. Yfirferð rektors á starfsárinu 2025-2026

2606108
Rektor fór yfir helstu áhersluatriði í starfsemi háskólans og rekstri:
 
  • Vöxtur og fjárhagslegar áskoranir: Háskólinn heldur áfram að stækka og þróast. Helstu áskoranir lúta að fjárstreymi og fjármögnun.
  • Samstarf við Háskólann á Bifröst: Viðræðum vegna mögulegra sameiningar við Háskólann á Bifröst var slitið á starfsárinu. Málið er ekki lengur á dagskrá eða til frekari meðferðar innan háskólaráðs.
  • Skipulagsbreytingar og ráðningar: Gengið hefur verið frá ráðningu nýrra sviðsstjóra í kjölfari skipulagsbreytinga í stoðþjónustu og stjórnsýslu. Umsóknarferlið gekk snurðulaust fyrir sig og bárust margar góðar umsóknir. Almenn ánægja er með nýjar ráðningar, en viðkomandi starfsmenn munu hefja störf í byrjun ágúst næstkomandi.
  • Innviðir og húsnæðismál: Framkvæmdir standa yfir við endurnýjun tilraunastofa á 1. hæð Borga. Húsnæðismál almennt eru áfram mikil áskorun fyrir háskólann og verður áfram unnið að lausnum í þeim málaflokki.
  • Framtíðarsýn og alþjóðastarf: Í kjölfar þess að viðræðum við Bifröst lauk, hefur skapast gott tækifæri og svigrúm til að ræða framtíðarstefnu háskólans, með sérstaka áherslu á uppbyggingu og sókn á alþjóðlegum vettvangi.
  • Prófahald og upplýsingalög: Rætt var um fyrirkomulag prófa. Ákveðið hefur verið að leggjast á sveif með öðrum háskólum í landinu um að knýja á um nauðsynlegar breytingar á upplýsingalögum er lúta að þessum málaflokki.
  • Námslok: Farið var yfir nýjustu útskriftartölur og skipulagningu háskólahátíðar.

Kynnt voru helstu verkefni sem fram undan eru í stjórnsýslu og fræðastarfi:

  • Stoðþjónusta og stjórnsýsla: Unnið er að því að festa ný svið í stoðþjónustu og stjórnsýslu í sessi. Í því samhengi þarf sérstaklega að huga að útfærslu og skipulagi á húsnæðismálum þeirra.
  • Fræðasvið og námsframboð:
    • Farið var yfir stöðu fræðasviða, en stefnt er að fjölgun birtinga og rýnt verður í stöðugildi innan einstakra deilda.
    • Gerð var grein fyrir opinberri ferð rektors og forseta HVR til Frakklands, sem farin var í tengslum við athugun á virkri þátttöku skólans í Evrópunetum háskóla.
    • Vinna við nýja háskólastefnu stendur nú yfir á vegum ráðuneytisins. Háskólar skulu skila inn sínum tillögum og athugasemdum vegna stefnunnar í haust.
    • Huga þarf að fjölgun námsleiða á meistarastigi og móta skýrari stefnu og útfærslu varðandi örnám.
    • Ánægju var lýst yfir með gott samstarf við kjörna fulltrúa á svæðinu og vonir bundnar við að svo verði áfram.
 
Rektor beindi þeirri ósk til háskólaráðs að fulltrúar tilgreindu hvaða kynningar eða málaflokka þeir óskuðu eftir að fá á borð ráðsins á næstunni. Eftirfarandi atriði voru rædd:
 
  • Tækninám: Mikilvægt er að fá kynningu á stöðu tækninámsins og framtíðarsýn þess innan skólans.
  • Alþjóðasamstarf og rannsóknir: Alþjóðavegferð háskólans er mikilvægt atriði varðandi framtíð hans. Rannsóknarstyrkir og samstarfsáætlanir á vegum Evrópusambandsins eru í mikilli þróun, sérstaklega með hliðsjón af FP10 og FP11, auk þess sem Horizon-áætlunin ESB sætir nú endurskoðun.
 

6. Bókfærð mál til samþykktar

  • UT reglur fyrir Háskólann á Akureyri (2606097)
    Háskólaráð frestar samþykkt nýrra UT reglna og felur rektor að kynna drög að nýjum reglum fyrir stjórnendum og leggja fyrir háskólaráð á ný að loknu kynningarferli.
  • Breyting á reglum nr. 822/2022 um doktorsnám og doktorspróf við Háskólann á Akureyri (2404110)
    Samþykkt
  • Breyting á reglum nr. 1211/2020 um gjaldskrá Háskólans á Akureyri (2409069)
    Samþykkt
  • Breyting á skipan doktorsnámsráðs (2506030)
    Samþykkt
 

7. Til fróðleiks

 
 
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:28.