Rannsakendur og doktorsnemar

EFNISYFIRLIT

  1. Orcid auðkenni
  2. Heimildaleit og heimildaskráning
  3. Útgáfa rannsóknarafurða

ORCID auðkenni

ORCID er alþjóðlegt auðkenni fyrir rannsakendur og samanstendur af 16 stafa talnarunu. ORCID tryggir að verk séu merkt réttum höfundi þó fleiri beri sama nafn. Einnig heldur auðkennið utan um mismunandi rithætti nafna.

Af hverju er ORCID mikilvægt?

 

Til að tryggja að allar rannsóknarafurðir birtast í IRIS og á ytri og innri vef HA, er nauðsynlegt að skrá þær í ORCID. Þannig þurfa rannsakendur ekki að skrá rannsóknarafurðir á mörgum stöðum.

Leiðbeiningar

 

Í Uglu má finna leiðbeiningar um ORCID.

Aðstoð frá bókasafninu

 

Starfsfólk bókasafnsins aðstoðar rannsakendur við:

  • Umsókn um ORCID auðkenni og tengingu ORCID við Uglu
  • Skráningu rannsóknarafurða í ORCID

Heimildaleit og heimildaskráning

Heimildaleit er grundvallaratriði í rannsóknarvinnu. Hún snýst um að finna, meta og velja áreiðanlegar upplýsingar sem styðja viðfangsefni rannsóknar. Heimildir eru svo teknar saman í heimildaskrá.

Nákvæm og ítarleg heimildaskráning:

  • Auðveldar öðrum að rekja og sannreyna heimildir
  • Sýnir fagmennsku
  • Sýnir virðingu fyrir hugverkum annarra fræðimanna

Aðstoð frá bókasafninu

 

Starfsfólk bókasafnsins aðstoðar rannsakendur við:

  • Heimildaöflun og upplýsingaleitir - d. aðstoð við að búa til leitarstrengi fyrir gagnasöfn
  • Heimildaöflun fyrir yfirlitsgrein (review article) eða kerfisbundna yfirlitsgrein (systematic review)
  • Notkun gervigreindar við heimildaleit
  • Millisafnalán - útvegar bækur eða tímaritsgreinar frá öðrum bókasöfnum
  • Innkaup á safnkostur sem tengjast rannsóknum
  • Heimildaskráning - hagnýtar upplýsingar og leiðbeinir við notkun heimildaskráningarforritsins RefWorks
  • Að að laga heimildastaðlar í RefWorks (t.d. APA, Chicago, Vancouver osfrv.) fyrir útgáfu fræðigreina

Útgáfa rannsóknarafurða

Bókasafn HA hvetur rannsakendur til að gefa út rannsóknir sínar í opnum aðgangi. Opinn aðgangur tryggir að niðurstöður verða aðgengilegar öllum, óháð fjárhag og staðsetningu.

Það eykur:

  • Sýnileika og aðgengi að niðurstöðum
  • Samstarfstækifæri
  • Gagnsæi og samfélagslegt gildi rannsókna

Hvernig vel ég rétta tímaritið?

 

  • Notaðu Open policy finder til að finna útgáfustefnur tímarita um opinn aðgang
  • Prófaðu Think, check, submit til að velja áreiðanleg tímarit. Leiðbeiningar á íslensku
  • Forðastu rányrkjutímarit (e. predatory journals). Það eru tímarit sem birta vísindagreinar gegn greiðslu, án ritrýni og gæðaeftirlits

Hvernig met ég gæði tímarits?

 

Aðstoð frá bókasafninu

 

Starfsfólk bókasafnsins aðstoðar rannsakendur við:

  • Birtingar í opnum aðgangi (stefnur tímarita, fjármögnunarleiðir og höfundarréttarmál)
  • Finna áhrifastuðla tímarita og höfunda
  • Úthlutun ISBN og ISSN númera
  • Upplýsingar um DOI (Document Object Identifier) fyrir tímaritsgreinar
  • Skráning rannsóknarafurða í rannsóknarkerfið IRIS