Háskólinn á Akureyri leitar að metnaðarfullum leiðtoga í starf forstöðumanns Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar (SVS). Ráðning er til fimm ára með möguleika á framlengingu. SVS er rannsókna- og fræðastofnun sem er starfrækt við Háskólann á Akureyri. Um er að ræða nýja rannsókna- og fræðastofnun sem varð til við samruna SVS við Háskólann á Akureyri sbr. lög nr. 77, 1. júlí 2024. Sjá einnig reglur nr. 1180/2024 um SVS við HA.
Stofnunin er vettvangur rannsókna í norðurslóðafræðum og starfar í alþjóðlegu vísindaumhverfi með áherslu á þverfagleg mannvísindi t.d. félags- og umhverfisvísindi. Hlutverk SVS er:
- að afla nýrrar þekkingar í norðurslóðafræðum með því m.a. að stunda rannsóknir í viðfangsefnum er varða velferð íbúa og sjálfbærni svæðisins í tengslum við samfélagsþróun, auðlindanýtingu, aðlögun að loftslagsbreytingum og efnahagsþróun
- að vera öndvegissetur og samstarfsvettvangur um málefni norðurslóða sem eflir samfélag rannsakenda um sjálfbæra samfélags- og hagþróun á svæðinu
- að starfa með innlendum og erlendum háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum með gagnkvæma öflun og miðlun þekkingar í huga
- að taka þátt í að efla kennslu í grunn- og framhaldsnámi í norðurslóðafræðum og heimskautarétti við Háskólann á Akureyri og byggja upp frjótt rannsóknaumhverfi fyrir meistara- og doktorsnema í rannsóknarnámi
- að efla íslenska og alþjóðlega miðstöð í málefnum norðurslóða á Akureyri
- að standa fyrir fræðslu, málstofum, ráðstefnum og fyrirlestrum um norðurslóðafræði
Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri. Sá sem valinn er ætti að vera tilbúinn til að byrja að vinna haustið 2025 eða eins fljótt og auðið er. Næsti yfirmaður er forseti Hug- og félagsvísindasviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rannsóknaáætlun og rekstrar- og fjárhagsáætlun SVS
- Framkvæmd stefnu og daglegur rekstur stofnunarinnar
- Rækta tengsl stofnunarinnar við innlenda og erlenda samstarfsaðila
- Umsóknir um styrki til að fjármagns verkefni og starfsemi innan SVS
- Fjármál stofnunarinnar
- Útgáfa ársskýrslu stofnunarinnar
- Styðja við og stjórna fyrirliggjandi rannsóknarverkefnum, kennslu og starfsemi innan SVS
- Stunda og stuðla að framúrskarandi rannsóknum á norðurslóðum
- Vera fulltrúi SVS á fundum, ráðstefnum og í verkefnanefndum
Hæfniskröfur
- Forstöðumaður skal hafa doktorspróf í viðkomandi fræðum og vera sérfræðingur í málefnum norðurslóðafræða, búa yfir þverfaglegri þekkingu, á sviði þverfaglegra mannvísinda t.d. félags- og umhverfisvísinda. Skal viðkomandi hafa hæfni til stjórnunar samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar HA.
- Akademískt hæfi á stigi lektors, dósents eða prófessors á fræðasviði sem tengist starfsemi stofnunarinnar.
- Reynsla af umsóknum um og stjórnun alþjóðlegra rannsóknastyrkja á fagsviði stofnunarinnar skilyrði.
- Reynsla af forystu og stefnumótun, sérstaklega innan háskóla- eða rannsóknarstofnana.
- Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Góð færni i upplýsingatækni, t.d. þekking á MS Word, Excel o.fl.
- Hæfni til kennslu norðurslóðamálefna og miðlunar í töluðu og rituðu máli, á íslensku og ensku. Færni í að tala og skrifa íslensku er talin mikill kostur.
Umsókn skal fylgja
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil, sem inniheldur einnig yfirlit yfirfræðastörf og kennslureynslu.
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
- Tveggja blaðsíðna lýsing á framtíðarsýn umsækjanda fyrir SVS á næstu fimm árum.
- Dæmi um þrjár útgefnar greinar ritaðar af umsækjanda. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
- Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur, æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 63/2006 um háskóla, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2025
Nánari upplýsingar veitir
Thomas Barry, tom@unak.is og sími 460 8028.
Sækja um starf