Laust starf: Staða sérfræðings við Miðstöð skólaþróunar

Laus er til umsóknar staða sérfræðings við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA). Um er að ræða 100% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst næstkomandi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starf sérfræðings á Miðstöð skólaþróunar tekur til ráðgjafar, fræðslu, úttekta, rannsókna og annarra sérfræðistarfa sem unnin eru í skólum með stjórnendum, einstökum kennurum eða kennarahópum, foreldrum og öðrum ráðgjöfum á grundvelli verkefnasamninga sem Miðstöð skólaþróunar gerir. Jafnframt annast sérfræðingur miðstöðvarinnar fræðslu af ýmsu tagi, skipulag ráðstefna og fræðslufunda.

Miðstöð skólaþróunar starfar innan Hug- og félagsvísindasviðs háskólans í nánu samstarfi við kennaradeild. Meginviðfangsefni hennar lúta að ráðgjöf og fræðslu til kennara og skólastjóra varðandi þróunar- og umbótastarf á vettvangi skóla. Miðstöðin stendur einnig fyrir fjölbreyttum ráðstefnum og fræðslufundum. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar. Vinnustaður er í Hafnarstræti 95 og á Sólborg v/Norðurslóð, Akureyri. Sjá nánari upplýsingar á vef MSHA.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf með sérþekkingu í menntunarfræði og að lágmarki meistarapróf á sviði fræða sem tengjast starfsemi miðstöðvarinnar.
  • Leyfisbréf til kennsluréttinda og reynsla af kennslu í leik-, grunn- eða framhaldsskóla.
  • Reynsla af verkefnastjórn, kennsluráðgjöf og umsjón með þróunarstarfi í skólum er nauðsynleg og er sérstaklega horft til reynslu af ráðgjöf á sviði læsis, leiðsagnarnáms, teymisvinnu/teymiskennslu og ráðgjöf til kennara vegna ÍSAT nemenda í grunn- og framhaldsskólum með áherslu á Talking partners aðferðina.
  • Frumkvæði og forystuhæfni.
  • Fagleg og lausnamiðuð vinnubrögð og samstarfshæfni.
  • Góð færni í íslensku og ensku er nauðsynleg og færni í einu skandinavísku tungumáli er æskileg.

Umsókn skal fylgja

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur, æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.

Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 2025

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Nánari upplýsingar veitir

Gunnar Gíslason, forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar, gunnarg@unak.is og sími 8921453 

Sækja um starf