Aldraðir þurfa að borða vel og njóta þess

Opið hús bauð í gær upp á fræðslu um heilsueflandi þjónustu og næringu aldraðra
Aldraðir þurfa að borða vel og njóta þess

Opna húsið í Háskólanum á Akureyri bauð í gær, þann 18. maí, upp á fræðslu um heilsueflandi þjónustu og forvarnir Heilbrigðistofnunar Norðurlands sem starfar á svæðinu frá Blönduósi til Þórshafnar. Auk þess var fyrirlestur með áherslu á ráðleggingar um næringu aldraðra og þær hættur sem fylgja vannæringu þessa sama aldurshóps. Fyrirlesarar voru Ingibjörg Lára Símonardóttir yfirhjúkrunarfræðingur svæðis HSN á Akureyri og dr. Berglind S. Ásbjörnsdóttir Blöndal klínískur næringarfræðingur.

HSN tók upp þverfaglega teymisvinnu árið 2014 með það að leiðarljósi að efla forvarnir og heilsueflingu og tryggja fólki á Norðurlandi betra aðgengi að heilbrigðisþjónustu. Þegar þessi vinna hófst voru um 14.000 einstaklingar án heimilislæknis á svæðinu. Ingibjörg sagði að þjónustusvæðið spannaði 400 km og heilbrigðisfólkinu væri skipt niður í þverfagleg teymi. Þetta nýja fyrirkomulag hefði þegar gefið góða raun og jafnaði álagið á fagfólkið og tryggði fólki á svæðinu betri þjónustu.

Ingibjörg vakti líka athygli á því að í byrjun þessa árs hafi verið sett á laggirnar endurhæfingarteymi á Akureyri sem ætti að stuðla að því að gera fólk eins sjálfbjarga og hægt væri eftir áföll og sjúkrahúsvist. Um 30 einstaklingar fá þessa þjónustu á hverjum tíma. Hún sagði að þetta verkefni hefði þegar sannað gildi sitt.

Orkuþörf minnkar en huga þarf að næringarinntöku

Berglind sagði að oft héldi fólk að það þyrfti að borða minna þegar aldurinn færðist yfir. Hún lagði áherslu á að þó svo að orkuþörfin minnkaði aðeins þyrfti fólk að borða vel og þörfin fyrir vítamín og steinefni minnkaði ekki. Til þess að koma í veg fyrir vannæringu þyfti fólk á fá prótein oft á dag og þau koma meðal annars úr eggjum, kjöti, fiski, baunum, hnetum , grískri yogurt og skyri. D vítamín og kalk væru líka mikilvæg efni fyrir þennan aldurshóp.

Berglind undirstrikaði gildi þess að njóta þess að borða. Hún varaði við því að fólk á fullorðinsaldri færi í megrun vegna þess hve mikil rýrnun yrði á vöðvamassa líkamans í kjölfarið. Hún nefndi fjölmörg atriði sem fylgja vannæringu aldraðra meðal annars orkuleysi, þreytu, vöðvarýrnun, þunglyndi og minnisleysi.

Opið hús í júní

Síðasta opna húsið á þessu vori verður í júní en þá mun Áslaug Ásgeirsdóttir rektor bjóða gestum í gönguferð um húsakynni háskólans og kynna starfsemina. Tími verður líka gefinn til þess að safna hugmyndum gesta um möguleg efni til umfjöllunar í Opnu húsi á komandi hausti.

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár – Akureyrarbær.