Ársfundur HA 2026 – Starfsfólk heiðrað á ársfundi

Ársfundur HA fyrir starfsárið 2025 fór fram 12. maí síðastliðinn.
Ársfundur HA 2026 – Starfsfólk heiðrað á ársfundi

Ársfundur Háskólans á Akureyri fyrir starfsárið 2025 fór fram 12. maí síðastliðinn. Þar fór fram hefðbundin dagskrá þar sem farið var yfir ársreikning háskólans og rýnt í starfsárið. Sama dag var opin sýning á plakötum frá rannsakendum þar sem við fengum að kynnast broti af því öfluga rannsóknarstarfi sem fer fram hér í HA.

Háskólanám samfélagsleg fjárfesting

Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Akureyrarbæjar ávarpaði gesti í upphafi fundar. Hún ræddi um leiðandi stöðu HA hvað varðar sveigjanlegt nám og stafrænar lausnir ásamt því hvernig nýjar námsleiðir hafi mætt þörfum stúdenta og raunverulegum þörfum samfélagsins. Að lokum ítrekaði hún að framtíð Akureyrar og háskólans sé samtvinnuð og að bæði þurfi á hinu að halda og þegar unnið er saman þá verði Akureyri ekki bara góður staður til að búa á heldur líka fyrirmynd annarra sambærilegra borga þegar horft er út fyrir landsteinana.

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri, kom þarnæst í pontu og ræddi mikilvægi HA í að gefa fólki tækifæri til þess að geta menntað sig þar sem það býr, því þá styrkjast samfélög þeirra. Þegar kennari, hjúkrunarfræðingur, lögfræðingur, sálfræðingur, viðskiptafræðingur eða sérfræðingur getur byggt upp þekkingu og starfað áfram í sínu samfélagi, þá er háskólanám ekki bara persónulegt tækifæri. Það er samfélagsleg fjárfesting. 

Þá gerði hún gildi háskólamenntunar í hraðvaxandi heimi gervigreindarinnar þar sem hægt er að fá skjót svör og lausnir að umræðuefni.

Vinnubrögðin sem við kennum hjálpa háskólagengnu fólki að taka þátt á virkan hátt. Þau hjálpa okkur að leggja grunninn að aukinni farsæld, umbreytingum í heilbrigðisþjónustu, betri löggæslu, öflugri byggðaþróun og fjölbreyttu atvinnulífi.

Starfsfólk heiðrað

Í lok ársfundar heiðraði rektor starfsfólk við starfslok með gullmerki háskólans. Eftirfarandi voru heiðruð á staðnum og meðfylgjandi er umfjöllun um þeirra störf:

Harpa Halldórsdóttir

Harpa Halldórsdóttir hefur sinnt mikilvægu hlutverki við Háskólann á Akureyri fyrst sem fjármálastjóri og síðar í starfi sérfræðings fjármálagreininga.

Harpa lauk Cand. Oecon-prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986 og meistaragráðu í reikningshaldi og endurskoðun frá sama skóla árið 2007. Hún hefur auk þess sótt sér fjölbreytta endurmenntun á sviði stjórnunar, jafnlaunavottunar og rekstraráætlana. Áður en hún kom til háskólans starfaði hún meðal annars hjá Umboðsmanni skuldara og sem skrifstofustjóri á bæjarskrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps.

Harpa var ráðin fjármálastjóri Háskólans á Akureyri árið 2018 og gegndi því starfi af festu og ábyrgð. Síðar tók hún við starfi sérfræðings í fjármálagreiningum og hefur þar nýtt víðtæka þekkingu sína á fjármálum, bókhaldi og rekstri. Hún hefur jafnframt sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir háskólann, meðal annars í stjórn Végeirsstaðasjóðs, stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri og rannsóknamisserisnefnd.

Samstarfsfólk lýsir Hörpu sem fagmanneskju fram í fingurgóma, úrræðagóðri, sanngjarnri, skýrri og hnyttinni. Hún er sögð hafa einstakt lag á að segja hlutina á mannamáli, leiðbeina öðrum af rausn og svara góðlátlegu gríni í sömu mynt. Þar fer manneskja með mikla þekkingu, sterkan húmor og hlýja nærveru.

Við þökkum Hörpu fyrir ómetanlegt framlag til Háskólans á Akureyri, samstarfið og samveruna í gegnum tíðina. Harpa, við óskum þér alls hins besta á næsta kafla lífsins.

Birgir Guðmundsson

Birgir Guðmundsson, prófessor við Hug- og félagsvísindasvið var lykilaðili í að byggja upp fjölmiðlafræðinámið við háskólann.

Birgir lauk BA Honours-prófi í sagnfræði og stjórnmálafræði frá Háskólanum í Essex og Meistaragráðu í stjórnmálafræði frá Háskólanum í Manitoba árið 1985. Árið 2021 lauk hann hlaut hann doktorsgráðu frá Háskóla Íslands. Hann hefur einnig lokið námi í uppeldis- og kennslufræði við Háskóla Íslands.

Birgir hóf störf við Háskólann á Akureyri árið 2002 sem aðjúnkt við rekstrar- og viðskiptadeild. Árið 2004 hlaut hann framgang í lektorsstöðu við félagsvísinda- og lagadeild. Hann varð dósent árið 2010 og hlaut framgang í stöðu prófessors árið 2021. Árið 2022 tók hann við sem forseti Hug- og félagsvísindasviðs og gengdi því starfi í tvö ár.

Birgir hefur í gegnum sín störf verið lykilaðili í þróun náms og fræðastarfs á sínu sviði ásamt heildrænni uppbyggingu og þróun fræðasviða háskólans. Hann hefur sinnt fjölbreyttum trúnaðarstörfum fyrir háskólann og árið 2015 var hann tilnefndur sem fulltrúi Háskólans á Akureyri í fjölmiðlanefnd.

Samstarfsfólk lýsir Birgi sem skarpgáfuðum, víðsýnum og velviljuðum samstarfsmanni; manni sem gott er að leita til og sem hægt er að eiga uppbyggilegar rökræður við, hvort sem fólk er sammála eða ósammála. Nefnt var að Biggi væri sannarlega „haukur í horni“ — reynslubolti með einstaka hæfileika til að setja hlutina í skiljanlegt samhengi, taka viturlegar ákvarðanir og gefa góð ráð.

Við þökkum Birgi fyrir óeigingjarnt starf, fræðilega dýpt, hlýju nærveru og ómetanlegt framlag til Háskólans á Akureyri. Háskólinn, fjölmiðlafræðin og íslenskt fræðasamfélag eru ríkari fyrir að hafa fengið að njóta krafta hans.

Birgir, við óskum þér alls hins besta í næsta kafla lífsins.

Davíð Þór Björgvinsson

Davíð Þór Björgvinsson hefur átt glæsilegan og fjölbreyttan starfsferil á sviði lögfræði, bæði hér heima og erlendis. Hann er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, lauk meistaragráðu frá Duke University School of Law árið 1987 og svo doktorsprófi í lögum frá Université de Strasbourg árið 2013. Menntun hans endurspeglar vel þá alþjóðlegu sýn og fræðilegu dýpt sem hefur einkennt störf hans alla tíð.

Davíð Þór hefur starfað sem fræðimaður, kennari, prófessor og dómari, og notið mikillar virðingar meðal lögfræðinga. Hann hefur meðal annars gegnt prófessorsstöðum við háskóla hér heima og erlendis, verið dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og síðar dómari og forseti Landsréttar. Það er því óhætt að segja að fá hafa komið jafn víða við í íslensku og evrópsku réttarkerfi.

Lagadeild Háskólans á Akureyri hefur notið krafta Davíðs Þórs frá árinu 2021 þegar hann er ráðinn inn sem prófessor við Lagadeild. Árið 2024 tók hann svo við sem deildarforseti og hefur hann sinnt því starfi síðan. Það var mikill fengur fyrir laganám við HA. Samstarfsfólk lýsir Davíð Þór sem frábærum kennara og fyrirlesara auk þess að hafa aukið sýnileika deildarinna með virkri þátttöku sinni í samfélagsumræðu um þau mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Við erum öll þakklát hans framlagi til styrkingar laganámsins við skólann og samstarfsfólk hans segir þau vera lánsöm að hann sé reiðubúinn í að liðsinna deildinni áfram í stöðu Professor Emeritus. Þau hlakka til að sjá hann í lotum því að öllu ofantöldu undanskildu er hann bara svo skemmtilegur.

Við þökkum Davíð Þór fyrir ómetanlegt framlag hans til Háskólans á Akureyri og laganámsins sérstaklega.

Trausti Ragnar Tryggvason

Trausti Ragnar Tryggvason, umsjónarmaður húseigna- og búnaðar

Trausti vann við Háskólann á Akureyri frá árinu 2010 og þar til í mars á þessu ári. Hann er einstaklega hlýr, hjálpsamur og bóngóður – ekkert verkefni er of stórt eða of lítið.

Það fylgir Trausta ákveðin ró og öryggi; fólk veit að þegar hann tekur eitthvað að sér þá gerir hann það vel. Hann hefur einstakt lag á að hjálpa fólki, oft án þess að nokkur þurfii einu sinni að biðja um það.

Trausti er maður nákvæmninnar og hver hlutur á sér afmarkaðan og merktan stað. Nýir umsjónarmenn eru fljótir að læra þá reglu, að setja öll verkfæri á þennan eina rétta stað eftir notkun.

Trausti hélt utan um ótal verkefni og smáatriði sem flestir tóku ef til vill ekki eftir fyrr en eftir að hann lét af störfum. Þá kom í ljós hversu stóran þátt hann átti í því að daglegt starf gengi svona vel fyrir sig.

Svo átti hann sitt sérstaka ástar-hatursamband við Tjaldinn hér við háskólann. Hann lét yfirleitt eins og fuglinn færi í taugarnar á honum, en fylgdist samt náið með öllu sem tengdist varpinu. Hann vissi nákvæmlega hvenær tjaldurinn mætti og fór, hvernig gekk hjá ungunum og jafnvel hvað mávurinn var að bralla. Það var eiginlega öllum ljóst að undir þessum formælingum um tjaldinn var honum í raun mjög umhugað um hann.

Við þökkum Trausta fyrir ómetanlegt framlag til Háskólans á Akureyri, samstarfið og samveruna í gegnum tíðina. Trausti við óskum þér alls hins besta á næsta kafla lífsins.

 

Háskólinn á Akureyri þakkar Hörpu, Birgi, Davíð og Trausta fyrir ánægjulegt samstarf og þeirra mikilvæga þátt í uppbyggingu og eflingu háskólans. Með von um að nýr kafli reynist þeim ánægjulegur.

Þá var einnig heiðraður Jóhann Örlygsson því í ár fagnaði hann 30 ára starfsafmæli við skólann.

Jóhann Örlygsson

Þá heiðrum við hann Jóhann Örlygsson, prófessor við Auðlindadeild, sem hefur starfað við HA frá árinu 1996 og hefur komið víða við í sínum störfum. Hann fær blómvönd og gjöf frá háskólanum í tilefni 30 ára starfsafmælis.

Jóhann lauk stúdentsprófi frá náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri, B.S. prófi í líffræði frá Háskóla Íslands árið 1987 og doktorsgráðu í örverufræði frá Háskólanum í Uppsala árið 1994. Að því loknu stundaði hann post doc-rannsóknir við Háskólann í Groningen.

Jóhann var ráðinn lektor við Sjávarútvegsdeild árið 1996, samhliða hálfri stöðu sérfræðings hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins á Akureyri. Hann hlaut framgang í dósent árið 1999, var ráðinn í fullt starf við Auðlindadeild árið 2003 og varð prófessor árið 2008. Hann hefur einnig gegnt lykilhlutverkum í uppbyggingu náms og rannsókna, sinnt fjölmörgum störfum í nefndum, ráðum og starfshópum fyrir háskólann ásamt því að sækja fjölda rannsóknarstyrkja. Einnig sinnti hann í nokkur ár stöðu deildarforseta Auðlindadeildar.

Jóhann er einn af upphafsmönnum líftækninnar við HA og tók virkan þátt í uppbyggingu líftækninets Matvælaseturs Háskólans á Akureyri. Hann hefur um langt skeið verið í forsvari fyrir rannsóknir á hitakærum bakteríum og hagnýtingu fjölbreyttra eiginleika þeirra, auk þess að handleiða fjölda meistaranema og efla þverfræðilegt samstarf innan skólans.

Við þökkum Jóhanni fyrir ómetanlegt framlag til Háskólans á Akureyri, líftækninnar og rannsóknasamfélagsins, og óskum honum innilega til hamingju með 30 ára starfsafmælið.

Við þökkum öllum er mættu á ársfundinn í persónu og streymi og hlökkum til áframhaldandi samstarfs og samneytis á árinu sem nú er nánast hálfnað og næstu árum.