Doktorsvörn Andreu Hjálmsdóttur

Ver doktorsritgerð sína við Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideild hjá Háskóla Íslands
Doktorsvörn Andreu Hjálmsdóttur

Í dag, föstudaginn 22. maí, mun Andrea Hjálmsdóttir, lektor við Félagsvísindadeild, verja doktorsritgerð sína „Hvað kemur ástin þessu við?“ Starfsferlaþróun og samræming fjölskyldu- og atvinnulífs á meðal doktorsmenntaðra.. Vörnin fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands kl. 14:00 og er öllum opin. Þá verður streymt frá vörninni hér.

Andmælendur eru Dr. Kathleen Lynch, prófessor emerita við University College Dublin og Dr. Jerry A. Jacobs, prófessor við University of Pennsylvania.

Leiðbeinendi er dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði Háskóla Íslands.

Í doktorsnefnd sitja Helga Kristín Hallgrímsdóttir, prófessor við School of Public Administration, University of Victoria, Kanada og Þorgerður Einarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild, Háskóla Íslands..