Eyrún hlýtur styrk til rannsókna á hatursglæpum á Norðurlöndum

Verkefnið snýr að því að rannsaka hvernig lögregla á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð greinir, rannsakar og vinnur með hatursglæpi
Eyrún hlýtur styrk til rannsókna á hatursglæpum á Norðurlöndum

Eyrún Eyþórsdóttir, lektor í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri, hefur hlotið 15 milljóna króna styrk frá Norræna sakfræðiráðinu, The Nordic Research Council for Criminology (NSfK), til rannsóknarverkefnisins PHATENOR: Policing Hate Crime in the Nordics.

Verkefnið snýr að því að rannsaka hvernig lögregla á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð greinir, rannsakar og vinnur með hatursglæpi. Markmiðið er að varpa ljósi á hvernig löggjöf, skipulag lögreglu og starfsmenning móta framkvæmdina í hverju landi fyrir sig. Rannsóknin byggir meðal annars á viðtölum við 50 lögreglumenn í löndunum þremur og mun kortleggja áskoranir, góðar starfsvenjur og leiðir til að styðja betur við brotaþola.

Auk Eyrúnar koma að verkefninu Mika Hagerlid við Malmö háskóla í Svíþjóð og Rune Ellefsen við Háskólann í Ósló í Noregi. Verkefnið var valið sem sameiginlegt norrænt rannsóknarverkefni, en NSfK bárust alls 42 umsóknir árið 2026 og voru fimm verkefni og vinnuhópar valin til styrkveitingar.

Niðurstöður verkefnisins munu nýtast við frekari rannsóknir á sviði afbrotafræði, við þjálfun lögreglu og við stefnumótun sem miðar að markvissari og samræmdari viðbrögðum við hatursglæpum á Norðurlöndum.