Ráðstefnan Að finna rétta taktinn fór fram í Háskólabíói í byrjun maí í tilefni af lokum þriggja ára þróunar- og rannsóknarverkefnisins Stilla – hæglátt leikskólastarf. Verkefnið hefur verið unnið í nánu samstarfi leikskóla og fræðafólks, meðal annars við Háskólann á Akureyri, þar sem Kristín Dýrfjörð, dósent við Kennaradeild, hefur tekið þátt í rannsóknar- og þróunarstarfinu.
Vel þótti takast til og var mikil ánægja meðal þátttakenda. Í umsögnum kom meðal annars fram að þátttakendur upplifðu daginn sem „frábært málþing um hæglæti í leikskólastarfi“, „virkilega áhugaverða innspýtingu“ og „góðan fagdag leikskólasamfélagsins“. Þá lýstu þátttakendur umgjörðinni sem fallegri og sögðu ráðstefnuna hafa vakið löngun til að hugsa leikskólastarf upp á nýtt.
Fái börn tíma og rými eykst félagsfærni, sköpun og sjálfsstjórn
Stilla-verkefnið sameinar rannsóknir og vettvangsþróun í leikskólastarfi og markmiðið er að skoða hvernig hæglæti, eða slow pedagogy, getur skapað börnum aukið rými til leiks, tengsla og merkingarbærs náms.

Á ráðstefnunni kom saman alþjóðlegt fræðafólk, rannsakendur og starfandi leikskólakennarar til að ræða hæglæti í leikskólastarfi frá ólíkum sjónarhornum. Meðal fyrirlesara var Alison Clark, höfundur bókarinnar Slow knowledge and the unhurried child, sem fjallar um mikilvægi þess að börn fái tíma og rými til að dvelja við viðfangsefni sín. Þá kynntu íslensku leikskólarnir reynslu sína af þátttöku í verkefninu og hvernig hugmyndir um hæglæti hafa verið innleiddar í daglegt starf.
Niðurstöður verkefnisins benda til þess að hæglæti sé ekki aðeins spurning um rólegra dagskipulag heldur fagleg og siðferðileg afstaða sem hefur áhrif á samskipti, menningu og forgangsröðun í leikskólastarfi. Þegar börn fá meiri tíma til að sökkva sér í leik og könnun eykst meðal annars sjálfstjórn þeirra, félagsfærni og sköpun, auk þess sem leikurinn verður dýpri og merkingarbærari.
Samstarfið skilar sér í umræðu og birtingum
Auk Kristínar voru þátttakendur í verkefninu Anna Magnea Hreinsdóttir frá Háskóla Íslands og Alison Clark og Kari Carlsen frá USN háskólanum í Noregi. Þá var verkefnið einnig unnið í samstarfi við leikskólana Iðavelli á Akureyri, Ugluklett í Borgarnesi, Aðalþing í Kópavogi og Rauðhól í Reykjavík. Verkefnið hefur þegar skilað sér í fræðilegri birtingu í erlendu tímariti, auk þess sem grein er væntanleg í Netlu. Þá mun kafli um verkefnið birtast á næsta ári í bók á vegum Routledge um hæglátt leikskólastarf.
Stilla-verkefnið var styrkt af mennta- og barnamálaráðuneytinu og Rannsóknarsjóði Háskóla Íslands, auk þess sem Nordplus styrkti ráðstefnuna.