Heilsu- og velferðarþjónusta í dreifbýli – þvert á landamæri

Alþjóðlegur vinnuhópur SelfCare til fundar á Akureyri og Siglufirði
Heilsu- og velferðarþjónusta í dreifbýli – þvert á landamæri

Fulltrúar frá Háskólanum á Akureyri og Veltek tóku nýverið á móti erlendum samstarfsaðilum í verkefninu SelfCare, sem er styrkt af Northern Periphery and Arctic Programme (NPA).

Heimsóknin samanstóð af fulltrúum frá Region Västerbotten í Svíþjóð og University of Limerick á Írlandi og dvaldi hópurinn á Akureyri þar sem hann kynnti sér starfsemi Háskólans á Akureyri, aðstöðu og rannsóknir, auk þess sem fyrri dagur vinnustofu verkefnisins fór þar fram.

Tekist á við raunverulegar áskoranir

Meginmarkmið SelfCare-verkefnisins er að bæta aðgengi fólks sem býr á strjálbýlum og afskekktum svæðum að heilsu- og velferðarþjónustu sem styður við virka þátttöku einstaklinga í eigin heilsu. Verkefnið leggur áherslu á nýtingu stafrænnar tækni, samvinnu milli landa á NPA-svæðinu og aukna þekkingarmiðlun milli ólíkra kerfa og menningarheima.

„Það er afar dýrmætt fyrir Háskólann á Akureyri að taka þátt í þessu verkefni og fá hingað erlenda samstarfsaðila,“ segir Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms við Háskólann á Akureyri sem ásamt Björgu Þórðardóttur, gestalektor við HA, og Hönnu Sigríði Ásgeirsdóttur hjá Veltek skipulögðu heimsókn hópsins. „SelfCare snýst um raunverulegar áskoranir sem mörg hér á landi og annars staðar á Norðurslóðum standa frammi fyrir. Það var bæði lærdómsríkt og mjög ánægjulegt að taka á móti hópnum á Akureyri og deila reynslu, þekkingu og sýn á framtíðina.“

Í verkefninu er meðal annars lögð áhersla á að kortleggja núverandi þjónustu og stuðning við íbúa, hvernig fjarheilbrigðislausnir eru nýttar í sjálfsumönnun, áskoranir sem tengjast þátttöku notenda og stafrænum lausnum og hvernig fjölskyldur og aðstandendur eru hluti af stuðningskerfinu. Þá er einnig horft til þess hvernig þróa megi ný þjónustumódel sem henta sérstaklega fámennum og afskekktum byggðum.

Frá Akureyri til Fjallabyggðar

Að loknum vinnudegi á Akureyri hélt hópurinn til Fjallabyggðar, þar sem vinnustofan hélt áfram. Þar fengu þátttakendur tækifæri til að kynnast samfélaginu og þjónustu þess nánar, meðal annars með því að taka þátt í vikulegum gönguhópi 60+, sem vakti mikla ánægju gesta og gaf góða innsýn í mikilvægi félagslegrar þátttöku fyrir heilsu og vellíðan.

Gestirnir nutu góðs veðurs meðan á heimsókninni stóð, sem lagði sitt af mörkum til jákvæðrar upplifunar og góðrar stemningar í hópnum.

Mótun þjónustumódels og vegvísis

Næsta vinnustofa SelfCare-verkefnisins fer svo fram í Ballyvaughan í sýslunni Clare á Írlandi í október næstkomandi. Þar mun samstarfið halda áfram með það að markmiði að móta tillögur, leiðbeiningar og vegvísi að nýju þjónustumódeli fyrir sjálfsumönnun í dreifbýli á NPA-svæðinu.