Hvernig brúa foreldrar bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til dagvistun tekur við?

Foreldrar í umönnunarbili óskast í rannsókn
Hvernig brúa foreldrar bilið frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til dagvistun tekur við?

Við þeirri spurningu verður leitað svara í nýrri rannsókn sem dr. Sunna Símonardóttir, lektor í félagsfræði við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, ber ábyrgð á.

Rannsóknin beinist að reynslu foreldra sem eiga barn sem er orðið að minnsta kosti 13 mánaða gamalt en hefur ekki fengið pláss í dagvistun, hvort sem er í leikskóla eða hjá dagforeldri. Markmiðið er að öðlast dýpri skilning á því hvernig fjölskyldur skipuleggja daglegt líf, vinnu, tekjur og umönnun þegar formlegri fæðingarorlofstöku lýkur en dagvistun er ekki enn í boði.

Sunna hefur um árabil rannsakað foreldrahlutverk, fjölskyldulíf og foreldramenningu á Íslandi. Í nýlegri kynningu á vísindafólki Háskólans á Akureyri segir hún rannsóknir sínar snúast um það hvernig samfélagslegar væntingar til foreldra mótast og hvernig fólk upplifir þær kröfur á eigin skinni. Sunna er með BA-próf í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, meistaragráðu í kynjafræði við University of Leeds og doktorspróf í félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 2017. Hún tók við lektorsstöðu við Félagsvísindadeild HA árið 2025.

„Við vitum að það er algengt á Íslandi að við taki umönnunarbil þegar fæðingarorlofi lýkur sem foreldrar þurfa að brúa. Með rannsókninni viljum við hlusta á reynslu foreldra, skilja hvernig foreldrar taka ákvarðanir um vinnu og umönnun og hvaða áhrif þetta bil hefur á fjölskyldulíf, atvinnuþátttöku og líðan. Sú þekking getur skipt miklu máli þegar rætt er um stuðning við barnafjölskyldur og mótun fjölskyldustefnu,“ segir Sunna um tilurð rannsóknarinnar.

Viltu taka þátt?

Leitað er að viðmælendum, bæði feðrum og mæðrum, sem eru í þessari stöðu. Viðtölin eru trúnaðarmál og farið verður með allar upplýsingar samkvæmt því. Þátttakendum er frjálst að hætta þátttöku í rannsókninni á hvaða stigi sem er, án útskýringa og án afleiðinga.

Áhugasömum er bent á að senda tölvupóst á amt21@hi.is til að fá frekari upplýsingar eða skrá áhuga á þátttöku.

Ábyrgðaraðili rannsóknarinnar er dr. Sunna Símonardóttir, lektor við Háskólann á Akureyri, sunna@unak.is.