Starfsfólk við Háskólann á Akureyri fær styrk til þróunar gervigreindarnámsefnis fyrir framhaldsskóla
Kristian Guttesen, lektor við Háskólann á Akureyri, og Magnús Smári Smárason, verkefnastjóri í gervigreind við HA, hafa hlotið styrk úr Þróunarsjóði námsgagna hjá Rannsóknamiðstöð Íslands (RANNÍS) fyrir verkefnið Tækniseigla: Þverfaglegt vandamálamiðað námsefni í gervigreind fyrir framhaldsskóla.
Verkefnið miðar að því að þróa og gefa út þverfaglegt námsefni um gervigreind fyrir framhaldsskólastigið. Námsefnið, sem verður gefið út á tímabilinu júní 2026 til maí 2027, byggir á nýstárlegri aðferðafræði sem þróuð hefur verið við HA, svonefndri Tækniseiglu (e. Agentic Resilience) og vandamálamiðuðu námi (e. Problem-based learning, PBL).
Markmiðið er að efla gervigreindarlæsi nemenda á framhaldsskólastigi, bæði í bóknámi og iðnnámi, í samræmi við nýtt regluverk Evrópusambandsins um gervigreind (EU AI Act). Lögð er áhersla á að nemendur læri ekki einungis að nota gervigreindartækni, heldur að skilja takmarkanir hennar og viðhalda sjálfstæðri getu til úrlausna. Þannig verður jafnframt stuðlað að gervigreindarhæfni nemenda.
Áformaðir eru 6–10 þverfaglegir námsefnispakkar sem tengja gervigreind við íslensku, STEM-greinar, samfélagsfræði og listgreinar. Hvert námsefni inniheldur kennaraleiðbeiningar, matskvarða og raunverulegar verkefnalegar aðstæður. Allt efni verður aðgengilegt endurgjaldslaust á vefnum með Creative Commons leyfi.
Þetta er í þriðja skipti sem Kristian hlýtur styrk úr Þróunarsjóði námsgagna. Fyrri verkefni hans hafa birst á mannkostamenntun.is og á vef á vegum Rannsóknarstofu um háskóla, Heimspekistofnunar og Siðfræðistofnunar. Magnús hefur svo í starfi sínu við háskólann meðal annars leitt vinnu við heildstæða leiðbeinandi stefnu um ábyrga notkun gervigreindar ásamt fleiri verkefnum og er virkur í að miðla þekkingu um notkun gervigreindar á sinni eigin vefsíðu.