Sex nemendur í sjávarútvegsskóla GRÓ luku fjögurra mánaða námskeiði á Akureyri síðasta föstudag, tveir að auki kláruðu sitt nám í lok febrúar. Þeir dveljast svo nokkra daga í Reykjavík þar sem þeir útskrifast áður en hver heldur til síns heimlands. Þetta er fimmti árgangurinn sem HA þjálfar í sjálfbærri fiskveiðistjórnun í samstarfi við Fiskistofu.
„Þetta hefur verið ótrúlegt ferðalag," sagði einn nemendanna. „Við förum heim með nýja þekkingu og vonir um að geta breytt fiskveiðistjórnun í okkar eigin löndum. Veðrið er líka svo gott á Akureyri".
GRÓ félagarnir koma til Akureyrar alla leið frá Afríku, Asíu, Eyjaálfu og Mið Ameríku til að öðlast þekkingu og færni í ýmsu sem tengist fiskveiðistjórnun. Námið er hluti af sérfræðiskólum GRÓ sem ætlað er að styðja við uppbyggingu mannauðs í þróunarríkjum og stuðla að sjálfbærni og jafnrétti á heimsvísu. GRÓ skólarnir eru fjórir og hafa um áratugaskeið verið einn mikilvægasti þáttur í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands. Rekstur skólanna er að mestu leyti fjármagnaður af opinberum framlögum til þróunarsamvinnu Íslands.
Sjávarútvegsskóli GRÓ er rekinn af Hafrannsóknastofnuninni í samstarfi við Háskóla og stofnanir á Ísland og fær fjárveitingar frá Utanríkisráðuneytinu. Frá stofnun sjávarútvegsskóla GRÓ hafa um fjögur hundruð sérfræðingar verið þjálfaðir og hafa þátttakendur verið frá yfir sextíu löndum.
Háskólinn á Akureyri óskar öllum GRÓ félögunum góðrar og bjartrar framtíðar í heimlandi sínu.