Orðaleikur

MSHA hefur þróað námsefni fyrir leikskólabörn sem læra íslensku sem annað mál
Orðaleikur

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri hefur undanfarin tvö ár unnið að þróun vefsíðu með námsefni fyrir leikskólabörn sem læra íslensku sem annað mál. Námsefnið nefnist Orðaleikur er þróunarverkefni unnið í samstarfi MSHA og leikskólans Iðavallar með styrk frá Þróunarsjóði námsgagna, Sprotasjóði, KEA og Norðurorku.

Formleg opnun vefsíðunnar og kynning á námsefninu verður haldin í Háskólanum á Akureyri, 23. október frá klukkan 15.15-17.00 í stofu M101. Einnig verður streymt beint frá kynningunni fyrir þá sem ekki komast.

Orðaleikur samanstendur af:

  • Handbók um orðaforðakennslu fyrir leikskólakennara
  • Myndasafni af grunnorðaforða íslenskunnar með sérstakri áherslu á þau orð sem koma fyrir í umhverfi leikskólabarna
  • Kennsluleiðbeiningum
  • Rafrænu verkefnasafni sem getur bæði nýst í leikskólanum og heima

Námsefnið er aðgengilegt á vef notendum að kostnaðarlausu.

Skráning á kynninguna má finna hér.

Hér má nálgast streymi á kynninguna.