Stúdentafélag Háskólans á Akureyri hefur gefið út rafrænt stúdentakort stúdenta HA í formi smáforrits (e. app). Steinunn Alda Gunnarsdóttir, formaður SHA, segir að það hafi verið eðlileg þróun í samfélaginu að taka stökkið í rafrænt stúdentakort: „Staðreyndin er sú að flestir eru ávallt með símann meðferðis. Þar að auki er rafræna kortið umhverfisvænna. Til að mynda þurfti alltaf að prenta út límmiða fyrir hvert ár til þess að kortin væru gild,“ segir Steinunn.
Appið heitir Stúdentafélag HA og til að sækja það þurfa stúdentar að:
- Sækja forritið í App Store eða Play Store og hlaða því niður
- Skrá sig inn með HA netfangi
- Velja mynd fyrir kortið

Reynir Freyr Hauksson
Reynir Freyr Hauksson, formaður DATA félags tölvunarfræðinema er hönnuðurinn og smiðurinn á bak við SHA appið. Auk þess að vera á 3. ári í tölvunarfræði hefur Reynir starfað sem forritari við að hanna og smíða hugbúnað. Með reynsluna úr náminu og frá atvinnulífinu segir Reyni að það hafi verið spennandi að fá tækifæri til þess að smíða app algjörlega frá grunni með fullu valdi yfir hönnun og útliti.
Að mörgu er að hyggja þegar hanna á forrit sem virkar. Reynir segir að þróunarferlið skiptist í þrennt: Greiningu, hönnun og smíði. „Eftir að stjórn SHA var búin að ákveða hvað appið ætti að innihalda, gat ég byrjað að greina hvað þyrfti að gera. Ég byrjaði því að punkta niður hvað væri hægt að gera í appinu og eftir það ákvað ég hvaða skjái þyrfti að smíða,“ segir Reynir.
Í dag inniheldur forritið fjóra skjái fyrir notendur: Innritunarskjá, skjá til að hlaða inn mynd fyrir kort, kortaskjá og afsláttarskjá þar sem stúdentar geta séð hjá hvaða fyrirtæki er hægt að fá afslátt hverju sinni gegn framvísun rafræna kortsins.


Að baki forritsins liggur mikil vinna, en Reynir segir að það hafi tekið um það bil 70 klukkustundir að hanna og koma forritinu í loftið. „Áður en ég byrjaði á appinu þurfti ég að hanna og smíða bakenda sem geymir og sendir gögn til notandans. Bakendanum er skipt í 2 hluta: gagnagrunn og vefþjón. Gagnagrunnurinn geymir upplýsingar um afslætti og notendur á meðan vefþjónninn tekur á móti og vinnur úr beiðnum frá appinu í samstarfi við gagnagrunninn, t.d. innskráningarbeiðnum. Í vefþjóninum hefur svo stjórn SHA viðmót til þess að bæta við afsláttum fyrir stúdenta og til að framkvæma aðrar aðgerðir,“ segir Reynir.
„Tölvunarfræðinámið gagnaðist klárlega við alla þessa vinnu. Eins og ég sagði, að þá er hugbúnaðinum skipt í app, vefþjón og gagnagrunn. Í tölvunarfræðinni hef ég farið í námskeið sem heita þróun smáforrita (öpp), vefþjónustur og gagnasafnsfræði. Í þessum námskeiðum lærir maður grunninn á öllu þessu sem ég gerði til þess að gera appið að veruleika,“ segir Reynir að lokum.