Takk fyrir komuna á Tækninámsdag HA

Verður vonandi að árlegum viðburði
Takk fyrir komuna á Tækninámsdag HA

Tækninámsdagur HA fór fram síðastliðin föstudag og tókst afar vel. Vel var mætt á viðburðinn og sýndu gestir verkefnum stúdenta í stafrænni heilbrigðistækni, tækni-og tölvunarfræði mikinn áhuga.

„Svona sýning gerir stúdentum enn betur ljóst hversu mikils virði það er sem þeir eru að læra. Þau fá tækifæri til að kynna verkefnin sín fyrir öðrum, svara spurningum og sjá hvernig þekkingin nýtist í raunverulegum verkefnum. Það er bæði hvetjandi fyrir þau og mikilvægt fyrir samfélagið að sjá hvað býr í þessum hópi,“ segir Ólafur Jónsson, verkefnastjóri námsins.

Vettvangur umræðu og spurninga

Á deginum kynntu stúdentar fjölbreytt verkefni sem þeir hafa unnið að í náminu, meðal annars á sviði glatvarma, róbóta, vefsíðugerðar, sólarorku, iðntölva og sjálfvirkni, vefforritunar og hugbúnaðarþróunar. Gestir gengu á milli bása, spurðu spurninga og áttu góð samtöl við stúdenta um námið, verkefnin og þau tækifæri sem felast í tæknimenntun á svæðinu.

Erindi Helga Hrafns Halldórssonar, stofnanda og framkvæmdastjóra Maven, sló einnig í gegn. Hann sagði frá leið sinni úr tölvunarfræði við HA í stofnun fyrirtækisins Maven og deildi reynslu sinni af því að byggja upp fyrirtæki í hugbúnaðargeiranum á Íslandi. Vel var mætt á erindið og sköpuðust áhugaverðar umræður í lok þess.

Tækninámsdagurinn er mikilvægur vettvangur fyrir stúdenta til að sýna afrakstur námsins og fyrir gesti til að kynnast námi í tæknifræði og tölvunarfræði við HA. Námið er í boði við Háskólann á Akureyri í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og sameinar öflugt námsefni HR við sterkt námssamfélag og stuðning á staðnum við HA.

Mikilvægur styrkur frá atvinnulífinu

Á myndinni má sjá hluta af stjórn Verkfræðingafélagsins, Norðurlandsdeildar, sem færði tæknifræðinni leysisskurðarvél að gjöf. Gjöfin mun nýtast vel í verklegri kennslu og verkefnavinnu stúdenta og er gott dæmi um mikilvægi þess að nám og atvinnulíf vinni náið saman. Slíkt samstarf styrkir tengsl háskólans við fagumhverfið á svæðinu, eykur tækifæri stúdenta til að vinna með raunveruleg viðfangsefni og styður við áframhaldandi uppbyggingu tæknimenntunar á Norðurlandi.

Stefnt er Tækninámsdagur HA verði að árlegum viðburði enda á hverju ári ný verkefni sem eru unnin og mikilvægt að íbúar geti séð hvernig námið í HA er uppbyggt og afrakstur þess.