Veganestið er greinaflokkur á vegum Góðvina UNAK þar sem tekin eru viðtöl við útskrifaða stúdenta Háskólans á Akureyri
„Ég er fæddur á Ísafirði og á ættir mínar að rekja þangað frá báðum foreldrum mínum. Lífið byrjaði reyndar með smá Benjamin Button effect, því fyrstu árin bjó ég á elliheimilinu á Ísafirði, þar til ég var fimm ára. Þá fluttum við til Dalvíkur þar sem ég bjó til átta ára aldurs áður en leiðin lá til Kristiansand í Noregi.“ Segir Helgi Hrafn um sín fyrstu uppvaxtarár en þegar hann var tólf ára flutti fjölskyldan heim til Íslands, nánar tiltekið Dalvíkur þar sem Helgi kláraði grunnskóla.
„Ég útskrifast svo úr Menntaskólanum á Akureyri árið 2003 og fer beint í nám í tölvunarfræði við Háskólann á Akureyri. Með náminu vann ég fyrst hjá Tölvulistanum við sölu og viðgerðir á tölvum. Seinna byrjaði ég sem forritari hjá Þekkingu og þegar fyrirtækið eignaðist hlut í Stefnu rann deildin mín þar inn og samanlagt starfaði ég hjá þessum félögum í um átta og hálft ár.“Helgi segir að smám saman hafi ferillinn þróast í nýjar áttir og áherslan færðist yfir í gagnamál, viðskiptagreiningu og ráðgjöf.
„Sú vegferð leiddi mig síðar að stofnun Maven með vinum mínum Viktori og Pétri, þar sem ég starfa í dag og 1. maí síðastliðinn fögnuðum við fimm ára afmæli félagsins. Svo er gaman að segja frá því að nýverið keypti Origo allt hlutafé Maven.“
Alþjóðlega umhverfið á Akureyri hafði mikil áhrif
„Ég hafði alltaf mikinn áhuga á tölvum og tækni og því lá tölvunarfræðin mjög beint við þegar kom að því að velja háskólanám. Ég fór í tölvunarfræði við HA á þeim tíma þegar námið var enn sjálfstæð deild hjá háskólanum.“ Segir Helgi um hvernig leiðin lá í HA.
„Það sem heillaði mig sérstaklega við námið var hversu alþjóðlegt umhverfið var. Mark O’Brien var þá deildarforseti og allt námið var kennt á ensku, sem var frekar einstakt á þessum tíma og mjög góð reynsla. Fyrir norðan, á Akureyri, var ég allt í einu kominn í námsumhverfi þar sem margir kennaranna voru erlendir og komu með ólíka sýn, reynslu og nálgun inn í kennsluna.“
Helgi segir þetta umhverfi hafi haft mikil áhrif á sig. „Það að læra á ensku og þurfa að hugsa um tæknina í alþjóðlegu samhengi ýtti mér aðeins út fyrir þægindarammann strax frá byrjun. Þegar ég horfi til baka sé ég hversu dýrmætt það var. Kennarar eins og Adam Bridgen, Douglas Dankel, Syed Murtaza, Andrew Brooks og Tony Chan standa sérstaklega upp úr. Þeir náðu margir að tengja tæknina við raunveruleg verkefni og hugsunina á bak við lausnirnar, ekki bara kóðann sjálfan. Það hefur fylgt mér áfram í því hvernig ég nálgast tækni og hugbúnað í dag.“
Samfélag, metnaður og tækifæri
„Tíminn við HA reyndist mér vel, bæði faglega og persónulega. Fyrir mér var þetta ákveðið mótunarskeið. Ég fékk tækifæri til að kafa djúpt í tæknina og á sama tíma lærði ég mikið um fólk, ábyrgð, samskipti og teymisvinnu. Ég tók líka virkan þátt í félagslífinu á meðan ég var í HA og var meðal annars varaformaður DATA, félags tölvunarfræðinema við HA, og sat í stjórn FSHA. Sú reynsla kenndi mér heilmikið í skipulagningu, vinna með öðru fólki, koma hlutum í framkvæmd og taka þátt í samfélagi sem var stærra en bara námið sjálft.“ Segir Helgi og bætir við að það hafi nýst honum vel síðar á ferlinum.
„Það sem var líka sérstakt við HA á þessum tíma var hversu náið samband myndaðist milli stúdenta og kennara. Námið var tiltölulega lítið og persónulegt og það var greinilegt að kennararnir höfðu raunverulegan áhuga á því að stúdentar næðu árangri. Það skapaði mjög gott umhverfi til að vaxa, bæði sem einstaklingur og fagmanneskja. Ef ég ætti að draga saman reynsluna, upplifunina og veruna í HA í þrjú orð þá væru það orðin; samfélag, metnaður og tækifæri.“ Þannig lýsir Helgi samfélaginu og bætir við að það hafi verið sterkt og opnað tækifæri sem hann hafði ekki endilega séð fyrir þegar hann byrjaði í náminu.
Tengslin sem myndast jafn mikilvæg og námið
“Minningarnar frá þessum árum eru margar. Það sem kemur fyrst upp í hugann er hvað alþjóðlega andrúmsloft í tölvunarfræðinni var sérstakt. Það skapaðist líka mikil menning hjá hópnum til að spila Kana og við eyddum ófáum hléum í skólanum í spilamennsku.“ Segir Helgi brosandi þegar talið berst að minningum og segir að enn í dag þegar þessi hópur hittist í dag sé grínast með hvort einhver hafi munað að taka með sér spilastokk.
„Svo man ég auðvitað eftir endalausum kvöldum í verkefnavinnu þar sem fólk var að reyna að villuhreinsa kóða langt fram á nótt. Oft var mætt í tíma daginn eftir án mikillar orku og á sínum tíma gat þetta verið stressandi, en í dag eru þetta einhverjar af skemmtilegustu minningunum frá HA-árunum.“
Helgi segir aðspurður um ráð til þeirra sem eru að huga að námi, „nýtið tímann vel og takið þátt í öllu sem fylgir náminu, ekki bara kennslunni sjálfri. Tengslin sem myndast við samnemendur, kennara og jafnvel í félagslífinu geta skipt jafn miklu máli og námið sjálft þegar út í atvinnulífið er komið.“
„Ég vil líka hvetja fólk til að vera óhrætt við að prófa hluti. Það þarf ekki alltaf að vita nákvæmlega hvert leiðin liggur. Stundum opnast dyr sem ekki eru fyrirséðar og þá skiptir máli að þora að grípa tækifærin. Fyrir mig opnaði HA margar slíkar dyr og hafði áhrif á þá vegferð sem ég er enn á í dag.“
Fyrir áhugasöm má finna fleiri Veganestisviðtöl á Facebook-síðu Góðvina.