Veganestið er greinaflokkur á vegum Góðvina UNAK þar sem tekin eru viðtöl við útskrifaða nemendur Háskólans á Akureyri
„Ég ólst upp rétt fyrir utan Vancouver í Bresku Kólumbíu,“ byrjar Lisa. „Náttúran var alltaf nálæg og ég held að hún hafi mótað mig meira en ég gerði mér grein fyrir á þeim tíma.“
Í dag býr hún í litlum skíðabæ í fjallahéraði Bresku Kólumbíu, stað sem heldur henni áfram í nánum tengslum við þau landsvæði sem hún upplifir sterkustu tengslin við. Hún starfar sem leiðsögumaður á leiðangursskipum sem sigla um heimskautasvæðin, starf sem sameinar áhuga hennar á náttúru, fólki og námi.
Lisa lauk BA-prófi frá háskólanum í Bresku Kólumbíu. „Ég lærði jarð-, félags- og hugvísindi,“ segir hún. „Á þeim tíma hugsaði ég þetta ekki sem eitthvert heildarframtíðarplan heldur einfaldlega það sem vakti áhuga minn. Seinna áttaði ég mig á því hversu mikilvægur þessi breiði grunnur var.“
„Ég sá vandamálin en gat ekki breytt þeim“
Í næstum tuttugu ár starfaði Lisa við vinnslu auðlinda í Kanada. „Ég vann náið með frumbyggjasamfélögum og einnig með stórfyrirtækjum,“ útskýrir hún. „Ég sá mjög skýrt hversu erfitt þessir hópar áttu með að eiga samskipti sín á milli, jafnvel þegar langtímamarkmið eins og sjálfbærni voru sameiginleg.“
Hún lýsir þessu bili sem gjá sem hún stóð nógu nálægt til að sjá, en var ekki í stakk búin til að brúa. „Með BA-gráðunni fannst mér ég skilja hvað var að gerast á vettvangi,“ segir hún. „En ég vissi líka að það væri ekki nóg að bara skilja. Ég hafði hvorki verkfærin né stöðuna til að taka raunverulegan þátt í mótun lausna.“
Þessi innsýn leiddi hana að lokum í leit að meistaranámi sem gengi lengra en kenningar einar. „Ég vildi menntun sem gerði mér kleift að taka virkan þátt í samtölum þar sem fyrirtæki, ríki og aðrir aðilar koma að borðinu og að tekið væri mark á mér.“
Leitin leiddi hana til Akureyrar.
Polar law-námið á Akureyri hafði svörin
„Polar Law-námið við HA var algjör fjársjóður,“ segir Lisa brosandi. „Það á sér enga hliðstæðu og fjallar um raunveruleika samtímans á norðurslóðum, eitthvað sem ég hafði kynnst af eigin raun í starfi mínu.“
Námið á Akureyri var krefjandi, rifjar hún upp, en afar gefandi. „Uppbyggingin var ströng en ótrúlega skilvirk. Þarna fékk ég í æð í einum pakka sérhæfða þekkingu undanfarinna alda.“
Spurð um kennara sem höfðu sérstaklega áhrif á hana nefnir hún nokkra sem mótuðu upplifun hennar: Joan Larsen, Julia Jabour, Jón Ingimundarson, Giorgio Baruchello, Demian Schane, Sólveigu Guðmundsdóttur, Emblu Oddsdóttur, Tom Barry og Lassi Heininen.
Hún nefnir þó sérstaklega prófessor Rachael Lorna Johnstone. „Rachael er ekki aðeins framúrskarandi prófessor heldur hefur hún sýnt mikla alúð og natni í því að móta þetta nám,“ segir Lisa. „Hún er skörp, næm, samviskusöm, algjör meistari í kennslu og óþreytandi í að vera aðgengileg stúdentum. Hún er snillingur í skipulagi og hefur skapað meistaraverk með því að setja saman kennara og námskeið á skilvirkan og áhrifaríkan hátt svo við fáum aðgang að einstæðri sérfræðiþekkingu á hverju sviði.“
„Í rauninni vil ég samt hrósa öllum þeim kennurum sem ég hafði það lán að nema hjá.“
Þegar kannað er af alvöru þarf að sleppa takinu
Eftir útskrift fór Lisa ekki hefðbundna starfsleið. „Ég fylgdi hjartanu,“ segir hún einfaldlega. Hún hóf störf sem leiðsögukona á norðurslóðum, kynntist fólki sem þar býr og leiðsagði ferðafólki sem þráði að læra meira.
Tíminn við HA hafði áhrif á lífsviðhorf hennar jafnt sem starfsferil. „Þegar þú ert raunverulega að kanna nýjar slóðir veistu aldrei hvað bíður handan næsta horns,“ segir Lisa. „HA kenndi mér að vera opin og stundum jafnvel tilbúin í að sleppa tökum á heildar framtíðarplaninu.“
Stafræn heimkynni við HA
Þegar Lisa er spurð hvaða þrjú orð komi fyrst upp í hugann þegar hún hugsar um Háskólann á Akureyri svarar hún hiklaust: lærdómur, könnun, áskorun.
„Þessi orð lýsa tíma mínum þar fullkomlega,“ segir hún. „Ég var stöðugt að læra, ekki bara af námsefninu heldur af fólki og ólíkum sjónarhornum. Ég kynntist hugmyndum sem ég hafði aldrei áður heyrt af. Og já, það voru áskoranir, stundum daglega.“
Hún hlær þegar hún rifjar upp hvernig það var fyrir fullorðinn stúdent að koma í HA sem og stafræna umhverfið þar. „Fyrsta verkefnið mitt var mér næstum um megn,“ viðurkennir hún. „Ég hafði ekki hugmynd um hvað OneDrive var, og á einum tímapunkti, púff!, hvarf ritgerðin mín.“
Það var streita og ringulreið sem einkenndi nóttina fyrir skil verkefnisins. „En ég lærði af þessu og skilaði verkefninu rétt fyrir skilafrest. Daginn eftir, á meðan önnur voru að lesa Polar Law-handbókina, var ég að gúggla: „Hvað er OneDrive?““
Þetta snýst ekki um rétt eða rangt
Lisa segir að námið hafi umbreytt skilningi hennar á lögunum. „Ég ólst upp við að halda að lög snúist um „rétt og rangt“ og um jafnræði, sanngirni og réttlæti og að þessi hugtök þýði það sama fyrir öll. En í námi mínu lærði ég margt um réttarheimspeki. Það eru jafnmörg sjónarhorn og fólk er margt. Lög eru pólitísk. Pólitík mótast af almenningsáliti og almenningsálit breytist hægt með menntun. “
Fyrir þau sem íhuga nám á þessu sviði er ráð hennar einfalt en ígrundað: Vertu forvitin og opin og vertu tilbúin að efast um forsendur þínar. Þar byrjar jafnan dýrmætasta námið.
Við þökkum Lisu kærlega fyrir gott spjall og óskum henni áframhaldandi velfarnaðar í sínum störfum.
Fyrir áhugasama má finna fleiri Veganestisviðtöl á Facebook-síðu Góðvina.