Málþing til heiðurs dr. Davíð Þór Björgvinssyni
„Á mörkum heima“ – málþing til heiðurs dr. Davíð þór björgvinssyni
Lagadeild Háskólans á Akureyri stendur fyrir málþingi til heiðurs Davíð Þór Björgvinssyni, prófessors emeritusar, miðvikudaginn 4. nóvember. Tilefni málþingsins er sjötugsafmæli Davíðs.
Davíð Þór Björgvinsson er einn af fremstu og afkastamestu fræðimönnum þjóðarinnar í lögfræði. Rannsóknir hans eru á víðu sviði lögfræðinnar, hvort sem litið er til einstakra réttarsviða lögfræðinnar, innlends eða alþjóðlegs réttar eða fræðigreina sem standa á mörkum lögfræði, heimspeki og sagnfræði. Eftir hann liggur fjöldi ritverka; bækur, greinar og pistlar.
Davíð Þór lauk embættisprófi í lögfræði frá lagadeild HÍ (cand.jur.) og síðar meistaragráðu frá Duke-háskóla (LLM) og doktorsprófi frá Strassborgarháskóla (doctorat sciences juridiques, droit internationale). Hann hefur auk þess lokið BA gráðu í sagnfræði og heimspeki frá heimspekideild HÍ.
Davíð hefur um árabil starfað við kennslu og rannsóknir við háskóla hérlendis og erlendis, nú síðast við Lagadeild Háskólans á Akureyri sem prófessor og deildarforseti. Þá var hann dómari við Landsrétt og dómari við Mannréttindadómstól Evrópu. Á málþinginu munu fræðimenn og fyrrum samstarfsmenn flytja erindi honum til heiðurs.
Skráning
Þátttakendur eru beðnir að skrá sig hér
Dagskrá
Málþingsstjóri: Valgerður Guðmundsdóttir, deildarforseti Lagadeildar
13.00-13.15 | ávarp
Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri
13.15-13.45 | ,,Pragmatismi í íslenskri dómaframkvæmd“

Skúli Magnússon, hæstaréttardómari
13.45-14.15 | ,,LÍF LAGANNA ER EKKI RÖKHYGGJA, HELDUR REYNSLA“

Ingibjörg Þorsteinsdóttir, landsréttardómari
15.30-15.45 kaffihlé
14.30-15.00 | ,,AÐ VERA EÐA EKKI VERA - FULLVELDI Í SÍBREYTILEGUM HEIMI“

Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lektor við Lagadeild HA
15.00-15.30 | pallborðsumræður
Samtal
15.30-16.00 | ávarp heiðursgests
Davíð Þór Björgvinsson, prófessor emeritus
16.00-17.00
Léttar veitingar
Frekari upplýsingar
Valgerður Guðmundsdóttir, deildarforseti Lagadeildar, veitir frekari upplýsingar um málþingið
Öll velkomin!