Að halda jafnvægi í lífinu — Hreyfing, öryggi og vellíðan fyrir 60+

20. apríl 2026 kl. 14:00-15:00
Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær

Hvernig getum við haldið styrk, jafnvægi og sjálfstæði sem lengst – án þess að gera lífið flókið?

Á þessu Opna húsi verður fjallað um hreyfingu á mannamáli:

  • Héðinn Svarfdal Björnsson kynnir verkefnið Virk efri ár og þau fjölbreyttu tækifæri sem þar eru í boði
  • Þorleifur Stefánsson, sjúkraþjálfari, ræðir byltuvarnir og sýnir hvernig snjallforrit getur stutt fólk við að stunda einfaldar og öruggar æfingar heima hjá sér
  • Anna Rebekka Hermannsdóttir deilir svo reynslu sinni af því að þjálfa 60+ íbúa – hvað virkar í raun og hvað skiptir mestu máli til lengri tíma

Erindið er fyrir alla sem vilja hreyfa sig af öryggi, auka lífsgæði og fá innblástur til að halda áfram – á sínum forsendum.

Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnisstjóri lýðheilsumála hjá Akureyrarbæ, Þorleifur Stefánsson, sjúkraþjálfari og Anna Rebekka Hermannsdóttir hafa í sínum störfum sinnt fjölbreyttum verkefnum í sínum störfum sem lúta að hreyfingu og vellíðan fólks á efri árum.

Næsta opna hús:

  • 18. maí - Næring fyrir eldri borgara og Teymisvinna HSN fyrir sína skjólstæðinga kynnt

Opin hús eru alltaf á mánudögum klukkan 14:00 í stofu N102, Sólborg, Norðurslóð 2

Velkomin í háskólann okkar allra!

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra!

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir - Ókeypis aðgangur!