16. febrúar 2026 kl. 14:00-15:00
Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra.
Skúli Bragi Geirdal ríður á vaðið með fræðslu um tölvuöryggi. Það mál brennur á mörgum í dag og í vaxandi mæli er verið að nýta sér tækni til að brjóta á fólki. Fræðslunni er ætlað að gefa innsýn inn í þær leiðir sem einstaklingar geta farið til að bæta sitt tölvuöryggi.
Skúli Bragi er fjölmiðlafræðingur að mennt. Hann er Akureyringum að góðu kunnur, hefur stundað nám og kennir við HA og hefur þjálfað fótbolta í bænum. Í dag starfar hann sem sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands. Hann stofnaði og heldur úti Tengslaneti um upplýsinga- og miðlalæsi á Íslandi auk þess sem hann leiðir vinnuhóp forseta Íslands sem ber vinnuheitið “Símafriður”.
Boðið verður upp á fleiri erindi á vormisseri á Opnu húsi:
- 30. mars - Sambúð eftir starfslok
- 20. apríl - Að halda jafnvægi í lífinu - Hreyfing, öryggi og vellíðan fyrir 60+
- 18. maí - Næring fyrir eldri borgara og Teymisvinna HSN fyrir sína skjólstæðinga kynnt
Opin hús eru alltaf á mánudögum klukkan 14:00 í stofu N102, Sólborg, Norðurslóð 2
Ókeypis aðgangur á meðan húsrúm leyfir!