26. mars 2026 kl. 14:30-16:00
Málstofa með einum fremsta sérfræðingi heims í þróunarfræði fugla
Miðstöð doktorsnáms við HA heldur opna málstofu þar sem Scott V. Edwards, prófessor við Harvard University, flytur erindið: Diversity of pangenomes from passerine birds: insights into structural variation and genome evolution
- Viðburðurinn fer fram á ensku í stofu M102
- Léttar veitingar að málstofu lokinni
Scott V. Edwards
Scott V. Edwards er Alexander Agassiz prófessor í dýrafræði og safnstjóri fuglafræði við Harvard University. Hann er meðal fremstu sérfræðinga heims í þróunarfræði fugla og nýtir erfðafræði, líffræðilega fjölbreytni og samanburð á erfðamengjum til að rannsaka uppruna og þróun eiginleika, svo sem fjaðra og flugleysis.
Rannsóknir hans hafa haft veruleg áhrif á skilning á þróunarsögu fugla, sjúkdómafræði, stofnerfðafræði og byggingu fuglagenamengisins. Hann var meðal fyrstu vísindamanna til að beita DNA-raðgreiningum til að kortleggja þróun tegunda (phylogeography) og hefur lengi rannsakað ónæmisgen (MHC) fugla og tengsl þeirra við sýkla og atferli.
Edwards hefur gegnt fjölbreyttum leiðtogahlutverkum, meðal annars sem deildarstjóri hjá US National Science Foundation með ábyrgð á 120 milljóna dollara árlegu rannsóknarfjármagni. Hann hefur verið forseti þriggja stórra alþjóðlegra fræðafélaga og setið í fjölda ráðgefandi nefnda fyrir stofnanir á borð við National Geographic, Smithsonian og Cornell Lab of Ornithology.
Hann hefur einnig stýrt verkefnum sem miða að því að lagða nemendur af ólíkum sviðum til að stunda þróunar- og líffræðirannsóknir. líffræðirannsóknum. Scott Edwards er félagi í American Academy of Arts og Sciences og National Academy of Sciences.
Öll velkomin!