Frá fjölmiðlum til fræða

6. nóvember 2026 kl. 13:00-18:30
Málþing til heiðurs Birgi Guðmundssyni

Frá fjölmiðlum til fræða — Málþing til heiðurs birgi guðmundssyni

Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri stendur fyrir málþingi til heiðurs Birgi Guðmundssyni, prófessor emeritus, föstudaginn 6. nóvember.

Tilefni málþingsins er sjötugsafmæli Birgis en um leið verður sjónum beint að merkum tímamótum í sögu íslenskra fjölmiðla. Árið 2026 eru 100 ár liðin frá stofnun fyrstu útvarpsstöðvarinnar á Íslandi, 60 ár frá fyrstu sjónvarpsútsendingu RÚV og 40 ár frá því að Bylgjan fór í loftið.

Birgir hefur um árabil starfað við kennslu og rannsóknir við Háskólann á Akureyri, meðal annars á sviði fjölmiðla, stjórnmála og samfélags. Á málþinginu verður ferill hans og framlag til fræðasamfélagsins heiðrað um leið og litið verður yfir þróun íslenskra fjölmiðla og þær breytingar sem orðið hafa á fjölmiðlaumhverfinu.

Skráning

Þátttakendur eru beðnir að skrá sig hér

Dagskrá

Kynnir: Ingibjörg Sigurðardóttir

13.00-13.15 | ávarp

Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri

fjölmiðlanám og fagmennska

 

13.15-13.30 | „Á nú að fara að kenna fjölmiðlafræði hér?“
Sigrún Stefánsdóttir, frv. dósent og frv. sviðsforseti Hug- og félagsvísindasviðs

13.30-13.40 | Fagmennska Birgis Guðmundssonar
Sigurður Kristinsson, prófessor við Félagsvísindadeild

13.40-14.50 | Hvers vegna fjölmiðlafræði
Jakob Þór Kristjánsson, alþjóðastjórnmálafræðingur og stundakennari við Félagsvísindadeild HA

14.50-15.50 | Fyrrverandi stúdentar í fjölmiðlanámi í HA

Guðmundur Gunnarsson, aðstoðarmaður atvinnuvegaráðherra
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, sveitarstjóri Múlaþings
Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, sérfræðingur í Háskólanum á Bifröst
Siggi Gunnars, dagskrárgerðarmaður á RÚV

15.15-15.30 | Pallborðsumræður


15.30-15.45 kaffiveitingar

RANNSÓKNIR - FJÖLMIÐLAR OG STJÓRNMÁL

 

15.45-15.55 | Fjölmiðlar, stjórnmál - og Birgir
Ólafur Harðarson, prófessor emeritus við Stjórnmálafræðideild HÍ

15.55-16.05 | Ómetanlegt framlag til fræðanna
Valgerður Jóhannsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ

16.05-16.15 | Hvernig hlera stjórnmálamenn hug borgaranna?
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Viðskiptadeild HA

16.15-16.30 | Pallborðsumræður

FJÖLMIÐLAR Á 21. ÖLD

 

16.30-16.40 | Framtíð fjölmiðla í frosti og funa
Guðbjörg Hildur Kolbeins, dósent við Félagsvísindadeild HA

16.40-16.50 | Samtal við samfélagið - fræðsluhlaðvarp
Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor við Félagsvísindadeild HA

16.50-17.00 | 
Amanda Guðrún Bjarnadóttir, frétta- og dagskrárgerðarkona á RÚV

17.00-17.20 | Pallborðsumræður

17.20-17.30 | ÁVARP

Birgir Guðmundsson, prófessor emeritus við Félagsvísindadeild HA

17.30-18.30

Léttar veitingar
Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar

Frekari upplýsingar

Guðbjörg Hildur Kolbeins, dósent við Félagsvísindadeild, veitir frekari upplýsingar um málþingið

 

Öll velkomin!