Gæði kennslu í nútíð og framtíð

Kynntar verða niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á gæðum kennslu í skólum á Norðurlöndum sem hefur staðið frá 2018

Ráðstefnan verður haldin á Hótel Natura í Reykjavík föstudaginn 10. nóvember 2023 kl. 13.00 – 17.00

Kynntar verða niðurstöður umfangsmikillar rannsóknar á gæðum kennslu í skólum á Norðurlöndum sem hefur staðið frá 2018. Ákveðnir þættir í kennslunni voru greindir út frá viðmiðum um góða kennslu og skoðaðir i tengslum við viðhorf nemenda. Gögnum var safnað með myndupptökum í kennslustofum og spurningalistum til nemenda. Rannsóknin tengist QUINT öndvegissetri um gæði kennslu á Norðurlöndum og er stýrt frá Háskólanum í Osló. Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands eru þátttakendur.

Frummælandi er Kirsti Klette prófessor við Háskólann í Osló og stjórnandi öndvegissetursins. Auk hennar munu rannsakendur hér á landi fjalla um afmarkaða þætti rannsóknarinnar.

Ráðstefnustjóri er Ingvar Sigurgeirsson fyrrverandi prófessor

Dagskrá

13:00-15:40

13:00-14:15 – Setning/ávarp: Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra

13:15-13:55 – Gæði kennslu og helstu niðurstöður QUINT
Kirsti Klette prófessor við Háskólann í Osló og stjórnandi QUINT öndvegisseturs

13:55-14:25 – Gæðaþættir í kennslu á Íslandi: íslenska, stærðfræði og samfélagsfræði
Jóhann Örn Sigurjónsson, nýdoktor við Kennaradeild Haskólans á Akureyri

14:25-14:14 – Gæði kennslu: Mat nemenda
Berglind Gísladóttir, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

14:40-14:55 – Spurningar og umræða

14:55-15:15 – Hvað svo? Örerindi

15:15-15:40 – Kaffihlé

15:40-16:50 Samhliða málstofur

Vitsmunaleg áskorun í stærðfræðikennslu
Jóhann Örn Sigurjónsson, nýdoktor við HA

Áhrifaþættir á námslega vellíðan nemenda og samspil við starfshætti og bekkjarbrag
Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA

Stigskiptur stuðningur og munnleg endurgjöf í kennslu
Birna María Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild HA

Læsiskennsla á unglingastigi: Textavinna í íslensku og samfélagsfræði
Rannveig Oddsdóttir lektor við Kennaradeild HA

Notkun stafrænnar tækni í kennslu
Sólveig Zophoníasdóttir aðjúnkt við Kennaradeild HA

Kennaramenntun: Sjónarhorn nema
Berglind Gísladóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ

Umræða
Málstofustjóri: Rúnar Sigþórsson

Umræða
Málstofustjóri: Anna Kristín Sigurðardóttir

 

Nauðsynlegt er að skrá sig til þátttöku á ráðstefnunni og er það gert hér.

Að ráðstefnunni standa:

  • Rannsóknarstofa um þróun skólastarfs á menntavísindasviði Háskóla Íslands
  • Kennaradeild Háskólans á Akureyri
  • Samtök áhugafólks um skólaþróun