Greenland: Political History to Present-Day: Heimsókn frá sendifulltrúa Grænlands

7. maí 2026 kl. 13:00-14:00
Sendifulltrúi Grænlands á Íslandi, Karsten Peter Jensen, heimsækir Akureyri fimmtudaginn 7. maí

Karsten mun heimsækja Háskólann á Akureyri og norðurslóðastofnanir á háskólasvæðinu.

Klukkan 13:00 mun hann halda opinn fyrirlestur sem ber yfirskriftina Kalaallit Nunaat / Greenland: Political History to Present-Day, by the Head of Greenland Representation in Iceland.

Grænland hefur verið í brennidepli heimsmálanna að undanförnu og við hvetjum öll sem hafa áhuga á sögu Grænlands og stöðu í alþjóðamálum til þess að nýta tækifærið og hlýða á fyrirlestur sendifulltrúa Grænlands á Íslandi.

Viðburðurinn fer fram á ensku í stofu M101.

Öll velkomin!