Háskólahátíð - framhaldsnám

Brautskráning kandídata úr framhaldsnámi

Háskólahátíð fer fram í Háskólanum á Akureyri 9.-10. júní 2023. Föstudaginn 9. júní verða brautskráðir kandídatar úr diplómanámi á framhaldsstigi og meistaranámi.

Helstu tímasetningar

Föstudagur 9. júní

15:00-15:30 Stutt æfing í Hátíðarsal
15:30-15:50 Hópmyndataka
16:00-17:00 Brautskráningarathöfn úr framhaldsnámi í Hátíðarsal
17:00-17:30 Móttaka með kaffi og sætum bita

Skráning

Kandídatar, starfsfólk og aðrir boðsgestir eru vinsamlegast beðnir um að skrá mætingu. Athugið að hver kandídat má koma með tvo boðsgesti á athöfnina.

  • Skráning kandídata í grunnnámi - Hug- og félagsvísindasvið
  • Skráning kandídata í grunnnámi - Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
  • Skráning kandídata í framhaldsnámi
  • Starfsfólk og aðrir boðsgestir

Gott að hafa í huga

Það er komið að tímamótum, við hlökkum til að sjá þig!