Háskólahátíð - grunnnám

Brautskráning kandídata úr grunnnámi

Háskólahátíð fer fram í Háskólanum á Akureyri 9.-10. júní 2023. Laugardaginn 10. júní verða brautskráðir kandídatar til bakkalárprófs og diplómanemendur á grunnstigi.

Athafnirnar verða tvær:

  • Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið kl. 10:00
  • Hug- og félagsvísindasvið kl. 14:00

Helstu tímasetningar

Föstudagur 9. júní

kl. 10:00-11:00 Æfing með starfsfólki sem hefur hlutverk á sviði
kl. 19:00-19:30
Æfing með kandídötum: Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
kl. 19:45-20:15 Æfing með kandídötum: Hug- og félagsvísindasvið

Laugardagur 10. júní - Heilbrigðis-, Viðskipta- og raunvísindasvið

kl. 09:00-09:30 Hópmyndataka: Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
kl. 10:00-11:30 Brautskráningarathöfn: Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
kl. 11:30-12:00 Móttaka með kaffi og sætum bita

Laugardagur 10. júní - Hug- og félagsvísindasvið

kl. 13:00-13:30 Hópmyndataka: Hug- og félagsvísindasvið
kl. 14:00-15:30 Brautskráningarathöfn: Hug- og félagsvísindasvið
kl. 15:30-16:00 Móttaka með kaffi og sætum bita

Skráning

Kandídatar, starfsfólk og aðrir boðsgestir eru vinsamlegast beðnir um að skrá mætingu. Athugið að hver kandídat má koma með tvo boðsgesti á athöfnina.

Gott að hafa í huga

Það er komið að tímamótum, við hlökkum til að sjá þig!