19. nóvember 2025 kl. 16:00-18:00
Kynning á nýrri bókaröð sem sameinar Ísland og Kanada.
Hvað er húmor?
Hvaða hlutverk gegnir hann? Af hverju getum við ekki lifað án hans? Af hverju hlær fólk að röngum hlutum brandara minna?
Alþjóðlegur hópur fræða og listafólks ásamt grínista koma saman í Amtsbókasafninu á Akureyri í tilefni útgáfu nýrrar bókaseríu hjá Northwest Passage Books í Kanada, eftir Giorgio Baruchello, prófessors við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri (HA).
Meðal þátttakenda og flytjenda verða Andrew Loman frá Memorial University of Newfoundland, Brendan Myers frá CEGEP Heritage College, Ívar Helgason, Mikael M. Karlsson frá Háskóla Íslands, Nanna Ýr Árnadóttir frá HA, Nikola Tutek frá University of Rijeka og Villi Vandræðaskáld. Andrew Paul Hill, lektor við HA, stýrir viðburðinum.
Erindi, uppistand og opin umræða fyrir almenning munu fara fram í afslöppuðu andrúmslofti með kaffi og köku í hönd.
- Staðsetning: Amtsbókasafnið
- Dagsetning: 19. nóvember 2025
- Tími: 16:00-18:00
- Veitingar: Orðakaffi Cakes
Ókeypis inn og öll velkomin! Athugið að viðburðurinn er á ensku.
Höfum gaman saman!
Smelltu hér til að skoða viðburðinn á facebook.