Læsi til náms og yndis

12. september 2026 kl. 09:30-16:00
Læsisráðstefna MSHA og MMS - Takið daginn frá

Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri (MSHA) og Miðstöð menntunar og skólaþróunar (MMS) standa fyrir læsisráðstefnunni Læsi til náms og yndis sem haldin verður við Háskólann á Akureyri laugardaginn 12. september 2026. Ráðstefnan er vettvangur fyrir kennara, skólastjórnendur, fræðafólk og aðra sem hafa áhuga á læsi og mikilvægi þess í námi og starfi skóla.

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni verða Dominic Wyse, Pernille Ripp, Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson. Auk aðalerinda verða fjölbreyttar málstofur og umræður um læsi sem grunn að námi, þátttöku og ánægju í skólastarfi.

Málstofukall

Við óskum eftir erindum á málstofur frá kennurum á öllum skólastigum, fræðafólki og öðrum áhugasömum um efni rástefnunnar. 

Einkum er leitað eftir:

  • Kynningu á árangursríkum leiðum, aðferðum og verkfærum
  • Kynningu á vel heppnuðum þróunarverkefnum
  • Kynningu á nýlegum íslenskum og erlendum rannsóknum
  • Efni sem bíður upp á kynningu og virka þátttöku gesta

Smelltu hér til að senda inn ágrip 

Frestur til að skila inn ágripum er til 15. maí. Ráðstefnuteymi sendir svör fyrir 15. júní.

Skráning

Ráðstefnugjald er 20.000 kr. og skrá þátttakendur sig hér. Ef þátttakendur hafa einnig áhuga á að fara á námstefnu í Byrjendalæsi á föstudeginum 11. mars er heildargjaldið 25.000 kr. hægt er að skrá sig á báða viðburði með því að smella hér.

Aðalfyrirlesarar

Pernille Ripp

Pernille Schmidt Ripp er kennari, rithöfundur og fyrirlesari sem starfar sem grunnskólakennari í Danmörku og vinnur jafnframt með kennurum víða um heim.

Í starfi sínu leggur hún áherslu á að endurskoða hugmyndir okkar um læsi, sjálfræði nemenda og hvers konar námsumhverfi börn eiga skilið í skólum.

Dominic Wyce

Dominic Wyse er prófessor í leik- og grunnskólafræðum við University College London, Institute of Education, og stofnandi Helen Hamlyn Centre for Pedagogy (0–11 Years), sem vinnur að rannsóknum á menntun ungra barna. Hann er einnig formaður menntunarnefndar Research Excellence Framework (REF) 2029 í Bretlandi.
Rannsóknir hans beinast einkum að kennslu í lestri og ritun í grunnskóla. Hann þróaði ásamt samstarfsfólki sínu kenninguna Double Helix of Reading and Writing, sem hefur haft áhrif á rannsóknir og kennsluhætti á alþjóðavettvangi.
Dominic Wyse hefur í meira en 25 ár lagt mikilvægt framlag til rannsókna á kennslufræði, námskrám og menntun ungra barna og hefur jafnframt skrifað áhrifamiklar bækur fyrir kennara og kennaranema.

Yrsa Þöll Gylfadóttir og Gunnar Theodór Eggertsson

Rithöfundarnir Yrsa Þöll og Gunnar Theodór hafa getið sér gott orð fyrir barna- og unglingabækur af ólíkum toga. Yrsa hefur m.a. skrifað hinar vinsælu Bekkurinn minn bækur og Gunnar ævintýraþríleikina um Drauga-Dísu og Furðufjall. Yrsa er auk þess tungumálakennari og frönskufræðingur og Gunnar bókmennta- og kvikmyndafræðingur. Fyrir síðustu jól skrifuðu þau sína fyrstu bók saman, Jólabókaorminn, sem er óður til lesturs og bóka. 

Drög að dagskrá

09:00-09:30 | Húsið opnar - Kaffi og móttaka

09:30-10:45 | Setning og fyrsta lykilerindi

 

09:30-09:45 | Setning

09:45-10:45 | Joy Is Not a Luxury: Reclaiming Humanity in Early Literacy – Pernille Ripp

Á tímum aukinnar áherslu á skipulag og mælanlegan árangur í læsiskennslu vaknar spurningin um hvernig unnt sé að viðhalda lestrargleði án þess að slaka á faglegum kröfum. Í erindinu fjallar Pernille Ripp um hvernig fyrstu ár skólagöngunnar móta bæði lestrarfærni barna og sjálfsmynd þeirra sem lesenda. Erindið byggir á reynslu fyrirlesara úr kennslu og bókunum hennar, Passionate Readers og Passionate Learners, þar sem lögð er áhersla á mikilvægi forvitni, valfrelsis og sjálfræðis í læsisþróun. Erindið varpar ljósi á mikilvægi þess að hlúa að undrun og áhuga í læsiskennslu.

Pernille mun flytja erindið á ensku. 

10:55-11:25 | Málstofur I

11:30-12:00 | Málstofur II


12:00-12:45 | Matarhlé

12:40-13:40 | Annað lykilerindi

 

The Double Helix of Reading and Writing: A new theory of teaching – Dominic Wyse

Árið 2024 var kynnt ný kenning um læsiskennslu, The Double Helix of Reading and Writing (Wyse og Hacking, 2024a, 2024b). Kenningin lýsir gagnvirku sambandi lesturs og ritunar þar sem þessir tveir þættir þróast samhliða og styðja hvor annan í námsferlinu. Í erindinu er fjallað um fræðilegar forsendur kenningarinnar, þann rannsóknagrunn sem hún byggir á og hvernig hugmyndirnar tengjast árangursríkri kennslu, bæði í stefnumótun og daglegu skólastarfi. Kenningin hefur þegar hlotið athygli á alþjóðlegum vettvangi.

Dominic Wyse flytur erindið á ensku.

13:50-14:20 | Málstofur III


14:20-14:40 | Kaffihlé

14:40-16:00 | Þriðja lykilerindi og ráðstefnuslit

 

14:40-15:30 | Gunnar Theodór Eggertsson og Yrsa Þöll Gylfadóttir

Þegar rithöfundar, sem flestir eru fullorðnir, skrifa barnabækur er óhjákvæmilegt að þeirra eigin barnæska og minningar liti skrif þeirra. Þótt við séum ekki lengur börn og getum ekki eins hæglega sett okkur í spor þeirra og skrifað út frá þeirra reynsluheimi í nútímanum þá lifir barnið í okkur enn góðu lífi. Við búum að sarpi tilfinninga, upplifana og mótandi atburða, en þurfum samt að viðhalda tengingu við nútímabörn sem lesendur. Hvernig kveikjum við áhuga þeirra á bókum og hvernig er best að viðhalda þeim áhuga? Hvaða sögur viljum við segja og eru það endilega sömu sögur og börn vilja heyra? Er nóg til af bókum fyrir alla? Yrsa Þöll og Gunnar Theodór ræða sínar leiðir til skrifta, hvernig þau vinna með bernskuminningar og leita á náðir sinna eigin barna. Þar að auki miðla þau af reynslu sinni sem barnabókahöfundar á hinum íslenska bókamarkaði og af tengslum við börn í skólum og ritsmiðjum.

15:30-16:00 | Ráðstefnuslit

Viltu fylgjast með?

Skráðu þig á póstlista ráðstefnunnar og fáðu upplýsingar þegar nær dregur.

Skrá mig á póstlista

Gagnlegar upplýsingar

  • Ráðstefnan fer fram í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 12. september. Ráðstefnan verður sett klukkan 09:30 og henni lýkur klukkan 16:00
  • Frestur til að senda inn ágrip er 1. maí og berst svar frá ráðstefnuteymi fyrir 1. júní
  • Ráðstefnugjald er 20.000 kr.
  • Viðburður á Facebook
  • Icelandair flýgur til Akureyrar, sjá flugáætlun á vef Icelandair
  • Hér má finna upplýsingar um helstu gististaði á Akureyri og í nágrenni
  • Nánari upplýsingar veitir Íris Hrönn Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá MSHA, 460-8592, iris@unak.is

Takið daginn frá - við hlökkum til að sjá ykkur!