Löggæsla og samfélagið

30. september - 1. október
Í níunda sinn fer ráðstefnan Löggæsla og samfélagið fram við HA — Þema ráðstefnunnar í ár er afbrot ungmenna

Ráðstefnan Löggæsla og samfélagið verður haldin í níunda sinn við Háskólann á Akureyri miðvikudaginn 30. september og fimmtudaginn 1. október, 2026. Það er Rannsóknasetur í lögreglufræði við HA sem heldur ráðstefnuna og þema hennar í ár er afbrot ungmenna.

Dagskrá

Dagskrá kemur hér fljótlega.

Skráning

Ráðstefnugjald er 10.500 krónur á mann og eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar innifaldar. Þátttakendur greiða sjálfir ferðakostnað, gistingu og mat. Háskólastúdentar frá frítt á ráðstefnuna

Skráning fer fram hér

Gagnlegar upplýsingar

  • Ráðstefnan fer fram í Miðborg Háskólans á Akureyri. Ráðstefnan hefst stundvíslega kl. 9:00 þrítugasta september og lýkur kl. 13:00 fyrsta október.
  • Almenn erindi og fyrirspurnir í kjölfarið skulu samtals ekki taka ekki lengri tíma en 25 mínútur. Ágrip af erindum (hámark 250 orð) skulu berast eigi síðar en 15. ágúst, 2026. Ágripin skal senda á Guðmund Oddsson, prófessor í félagsfræði við HA og (goddsson@unak.is).
  • Ráðstefnugjald er 10.500 krónur á mann og eru ráðstefnugögn og kaffiveitingar innifaldar. Þátttakendur greiða sjálfir ferðakostnað, gistingu og mat. Háskólastúdentar frá frítt á ráðstefnuna.
  • Ráðstefnukvöldverður verður að kvöldi miðvikudagsins 30. september.
  • Flugfélagið Icelandair flýgur til Akureyrar, sjá flugáætlun á www.icelandair.is
  • Facebook viðburður

Nánari upplýsingar

Hafið samband við Guðmund Oddsson, prófessor í félagsfræði við HA, goddsson@unak.is eða í síma 460 8677 vanti frekari upplýsingar.