3. mars 2026 kl. 09:00-10:30
Málþing doktorsnema 2026
Öll velkomin á málþing doktorsnema!
Á málþinginu fá gestir tækifæri til að kynnast fjölbreyttum rannsóknarverkefnum doktorsnema við Háskólann á Akureyri.
- Doktorsnemarnir munu flytja stutt erindi um verkefni sín og veitt verður innsýn í doktorsnám og rannsóknarumhverfi háskólans.
- Að kynningum loknum gefst gestum kostur á að taka þátt í opnu samtali við doktorsnemana, spyrja spurninga og ræða rannsóknir þeirra nánar.
- Málþingið fer fram í anddyrinu á Borgum á háskólasvæðinu.
Doktorsnemarnir & verkefnin
ASHANI ARULANANTHAN
PFAS Meet Arctic & Sub-Arctic Marine Diatoms: Accumulation Patterns and Impacts on the Food Web

Langvarandi útsetning fyrir PFAS getur haft áhrif á samlíf kísilþörunga og baktería, efnaskiptaferla þeirra og genatjáningu. Rannsóknin veitir innsýn í hvernig PFAS hefur áhrif á lífverur á norðlægum hafsvæðum og möguleg áhrif á fæðuvefinn.
KRISTRÚN MARÍA BJÖRNSDÓTTIR
Heilsuferðalagið (Health Journey Study)

Rannsóknin fjallar um hreyfimynstur og kyrrsetuhegðun fullorðinna Íslendinga, mælt með hröðunarmælum. Verkefnið veitir mikilvægar upplýsingar um daglega hreyfingu og heilsutengda hegðun í íslensku samfélagi.
MARIA FINSTER ÚLFARSSON
Participation, Support and Educational Needs of Adult Children Caring for Mothers in Nursing Homes

Meginmarkmið doktorsverkefnisins er að kanna kynjamun á þátttöku fullorðinna barna í umönnun mæðra sinna á hjúkrunarheimilum og meta þörf þeirra fyrir fræðslu og stuðning frá heilbrigðisstarfsfólki.
MARÍA DÍS ÓLAFSDÓTTIR
Leðurgerð úr roði í metravís

Rannsóknin snýst um að afla grunnþekkingar á eiginleikum roðs til að bæta árangur í leðurgerð. Markmiðið er að þróa betri skilning á efniviðnum og skapa forsendur fyrir nýtingu roðs í leðurframleiðslu.
UNNUR MAGNÚSDÓTTIR
Protein-ligand Analysis of the Chitinase-like Protein YKL-40 in Humans

Markmið rannsóknarinnar er að kanna sameindatengsl (molecular interactions) próteinsins YKL-40 við tengla (ligands) þess. Próteiknið tengist meðal annars mólgu, örvefsmyndun og krabbameini. Rannsóknin miðar að því að dýpka skilning á hlutverki YKL-40 í framgangi sjúkdóma og möguleikum þess sem lyfjamarks í meðferð.
öll velkomin, Doktorsnemarnir hlakka til að hitta ykkur!