Nýnemadagar

Velkomin í HA - Við hlökkum til að taka á móti ykkur og fræða um allt til grundvallar háskólanámi. Enginn nýnemi ætti að láta Nýnemadaga fram hjá sér fara

Markmið Nýnemadaga er meðal annars

  • Að bjóða nýnema velkomna til starfa í HA
  • Að gefa nýnemum tækifæri á að kynnast starfsfólki og þjónustu háskólans í upphafi náms, til að mynda tölvuumhverfi, prófareglum, bókasafni, námsráðgjöf, alþjóðasamstarfi, húsnæði og fleira
  • Að gera grein fyrir almennum væntingum HA til nýnema

Ekki hika við að nýta þér tækifæri til að kynnast háskólaumhverfinu. Reynslan sýnir að þátttaka á Nýnemadögum auðveldar stúdentum að hefja nám; þau eru fljótari að kynnast samnemendum sínum, vinnuumhverfi, starfsfólki og húsnæði HA. Fyrstu kennslustundirnar hefjast að loknum nýnemamóttökum í hverri deild fyrir sig.

Upplýsingar fyrir nýnema

Nýnemum er skipt í hópa

Mánudagur

  • Iðjuþjálfunarfræðideild
  • Hjúkrunarfræðideild
  • Fagnám fyrir starfandi sjúkraliða

Miðvikudagur

  • Félagsvísindadeild (félagsvísindi, fjölmiðlafræði, lögreglufræði og nútímafræði)
  • Lagadeild
  • Sálfræðideild
  • Kennaradeild

Fimmtudagur

  • Auðlindadeild (líftækni og sjávarútvegsfræði)
  • Viðskiptadeild
  • Tölvunarfræði og tæknifræði

Föstudagur

  • Allir nýnemar

Dagskrá

Mánudagur 21. ágúst

Nýnemar í Iðjuþjálfunarfræðideild, Hjúkrunarfræðideild og Fagnám fyrir starfandi sjúkraliða.

Formleg dagskrá hefst kl. 9 í Hátíðarsal. Stúdentar frá SHA taka á móti nýnemum með veitingum sem má grípa með sér inn í sal.

09:00-09:05 Ávarp rektors

09:05-09:15 Stúdentafélag Háskólans á Akureyri – SHA kynnir starfsemi sína

09:15-09:25 Anna Bryndís skrifstofustjóri heilsar og fer yfir mikilvægar upplýsingar

09:30-10:40 Dagskrá deilda:

  • Fagnám fyrir starfandi sjúkraliða í stofu M201
  • Hjúkrunarfræði áfram í Hátíðarsal
  • Iðjuþjálfundarfræði í stofu M101

10:45-12:00 Nýnemi 101 í Hátíðarsal og í streymi

12:00-12:40 Grill SHA fyrir framan aðalinngang

12:45-14:00 Nýnemi 101 í Hátíðarsal

Nýnemakvöld Eirar á Dátanum kl. 20:00 – Fylgist með Eir á Facebook

Miðvikudagur 23. ágúst

Nýnemar í Félagsvísindadeild, Lagadeild, Sálfræðideild og Kennaradeild.

Formleg dagskrá hefst kl. 9 í Hátíðarsal. Stúdentar frá SHA taka á móti nýnemum með veitingum sem má grípa með sér inn í sal.

09:00-09:05 Ávarp rektors

09:05-09:15 Stúdentafélag Háskólans á Akureyri – SHA kynnir starfsemi sína

09:15-09:25 Heiða Kristín skrifstofustjóri heilsar og fer yfir mikilvægar upplýsingar

09:30-10:40 Dagskrá deilda:

  • Félagsvísindadeild í stofu N101
  • Kennaradeild í stofu M102
  • Lagadeild í stofu M201
  • Sálfræðideild í stofu N102

10:10-10:40 Skiptist Félagsvísindadeild niður í dagskrá námsbrauta: 

  • Félagsvísindi í stofu L103
  • Fjölmiðlafræði í stofu N201
  • Lögreglufræði í stofu N101
  • Nútímafræði í stofu M202

10:45-12:00 Nýnemi 101 í Hátíðarsal og í streymi

12:00-12:40 Grill SHA fyrir framan aðalinngang

12:45-14:00 Nýnemi 101 í Hátíðarsal

Nýnemakvöld Kumpána fer fram á Götubarnum kl. 19:30 – Fylgist með Kumpána á Facebook

Nýnemakvöld Magister fer fram á Vamos kl. 20:00 – Fylgist með Magister á Facebook

Nýnemakvöld Þemis fer fram á Ölstofunni kl. 20:00 – Fylgist með Þemis á Facebook

Fimmtudagur 24. ágúst

Nýnemar í Auðlindadeild, Viðskiptadeild, tölvunarfræði og tæknifræði.

Formleg dagskrá hefst kl. 13. Stúdentar frá SHA taka á móti nýnemum með veitingum sem má grípa með sér.

Auðlindadeild í stofu M101

13:00-13:05 Ávarp rektors

13:05-13:10 Stúdentafélag Háskólans á Akureyri – SHA kynnir starfsemi sína

13:10-14:20 Dagskrá Auðlindadeildar

14:20-16:20 Nýnemi 101 og í streymi

Viðskiptadeild, tölvunarfræði og tæknifræði í stofu M102

13:00-13:05 Stúdentafélag Háskólans á Akureyri – SHA kynnir starfsemi sína

13:05-13:10 Ávarp rektors

13:10-14:20 Dagskrá Viðskiptadeildar í M102

13:10-14:20 Nýnemar í tölvunarfræði og tæknifræði fara í stofu L102 til kl. 14:15

14:20-16:20 Nýnemi 101 og í streymi

Nýnemakvöld Data – fer fram á Ölstofunni kl. 20:00 – Fylgist með Data á Facebook

Nýnemakvöld Reka fer fram á Ölstofunni kl. 20:00 – Fylgist með Reka á Facebook

Nýnemakvöld Stafnbúa fer fram á Ölstofunni kl. 20:00 – Fylgist með Stafnbúa á Facebook

Föstudagur 25. ágúst - Allir nýnemar

12:00 Grill SHA fyrir framan aðalinngang

13:00 Hringing Íslandsklukkunnar

13:03 Nýnemadagur SHA

Nýnemagleði SHA heldur áfram um kvöldið á Vamos kl. 21:00. Fylgist með SHA á Facebook.

VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ TAKA Á MÓTI ÞÉR Í HA Á NÝNEMADÖGUM!