1. október 2026 kl. 16:00-18:00
Opnun sýningar á Bókasafni HA
Öðruvísi orð – myndræn túlkun á samtali við náttúruna
Sýning Rakelar Hinriksdóttur, Öðruvísi orð – myndræn túlkun á samtali við náttúruna, opnar á Bókasafni Háskólans á Akureyri fimmtudaginn 1. október kl. 16.00
- Verið öll hjartanlega velkomin á opnunina
- Léttar veitingar í boði fyrir gesti
Öðruvísi orð er myndlistar- og sögusýning þar sem Rakel Hinriksdóttir túlkar samtal manns og náttúru með myndverkum, ljósmyndum og texta.
Myndirnar eru eins og orð. Birtast þér með meiningu í huga.
Í verkunum mætast sjónarhorn listamannsins og áhorfandans í því huglæga rými þar sem merking verður til. Sú hugsun liggur einnig til grundvallar samtalinu við náttúruna sem sýningin hverfist um.
Myndir, ljósmyndir og texti
Svarthvítu myndirnar eru unnar með pensli og svörtu bleki en lituðu verkin með akríl- og/eða vatnslitum og linoleumstimpli. Ljósmyndirnar í miðrými sýningarinnar eru teknar á norðurhálendi Íslands.
Textarnir á sýningunni eru úr bókverki sem kemur út samhliða henni. Þar prýða ljósmyndir frá norðurhálendi Íslands frásögn listamannsins af konu sem heimsækir hálendið, þreytt á samfélagi mannanna, samtölum, kerfum og flækjum. Í hrjóstrugu landslaginu mætir henni einfaldleikinn og samtöl við holtasóley, hraundranga og jökulfljót lita upplifun hennar. Valdir textar úr sögunni fylgja myndverkunum á sýningunni.
Rakel Hinriksdóttir

Rakel Hinriksdóttir er listakona, landvörður, fjölmiðlakona og grafískur hönnuður auk þess að vera formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi.
Fjörutíu ára reynsla hennar af því að eiga í samtali við tilveruna, áhugi og ást á náttúrunni og einlægur vilji til að hlusta á hana kristallast í sýningunni Öðruvísi orð.
Verndun og virðing fyrir náttúrunni hefst með því að hlusta.
Opnun og sýningartími
Sýningin opnar fimmtudaginn 1. október kl. 16.00 á Bókasafni Háskólans á Akureyri. Léttar veitingar í boði fyrir gesti.
Sýningin er opin á opnunartíma Bókasafnsins:
- Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 8-16
- Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 8-18
Öll hjartanlega velkomin!