30. september 2026 kl. 13:00-14:30
Á Lögfræðitorgi verður sjónum beint að óstaðbundnum störfum, þróun þeirra, tækifærum og áskorunum
Öll velkomin á Lögfræðitorg!
Á næsta Lögfræðitorgi verður sjónum beint að óstaðbundnum störfum, þróun þeirra, tækifærum og áskorunum.
- Hólmfríður Sveinsdóttir, verkefnastjóri byggðamála hjá innviðaráðuneytinu mun flytja erindið „Óstaðbundin störf – frá stefnu til framkvæmdar“
- Sæunn Gísladóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri mun fjalla um tækifæri og áskoranir sem felast í óstaðbundnum störfum
- Hafdís Erna Ásbjarnardóttir, aðjúnkt við Lagadeild HA mun ræða réttindi og skyldur í tengslum við óstaðbundin störf
Fundarstjóri verður Ingibjörg Ingvadóttir aðjúnkt og brautarstjóri við Lagadeild HA
Lögfræðitorg er vettvangur Lagadeildar HA fyrir fræðslu, samtal og miðlun þekkingar milli háskólans og samfélagsins. Þar eru tekin fyrir fjölbreytt lögfræðileg málefni og skapað rými fyrir samtal um þau frá ólíkum sjónarhornum.
- Lögfræðitorgið fer fram í stofu M201 í Háskólanum á Akureyri
- Áhugasöm sem komast ekki á staðinn geta tekið þátt í gegnum Zoom hér
við hlökkum til að sjá þig í ha!