Málþing Lagadeildar: Endurskoðun stjórnarskrár 2009-2017

í tilefni útgáfu bókar um endurskoðun stjórnarskrár í ritstjórn Ágústs Þórs Árnasonar og Catherine Dupré.

Lagadeild HA stendur fyrir rafrænu málþing í tilefni útgáfu bókar um endurskoðun stjórnarskrár í ritstjórn Ágústs Þórs Árnasonar og Catherine Dupré. Bókin ber heitið „Icelandic Constitutional Reform: People, Processes, Politics“ og kom á dögunum út hjá Routledge.

Meðal þátttakenda eru forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, en bókin hefur að geyma greinar eftir þau. Aðrir þátttakendur eru fræðimenn og höfundar greina í bókinni.

Málþingið er rafrænt og fer að mestu fram á ensku.

Öll velkomnin!

Skráning fer fram hér

Dagskrá

Fyrsta málstofa (14:00-14:30)

  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og einn greinarhöfunda: Hefur stjórnarskrárvinna skilað einhverju?
  • Umræður

Önnur málstofa (14:35-15:25)

  • Í minningu Ágústs Þórs Árnasonar, annars ritstjóra bókarinnar og eins greinarhöfunda

Þátttakendur:

  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og einn greinarhöfunda: Forsetinn og stjórnarskráin - fjórum árum síðar
  • Rachael Lorna Johnstone, prófessor við Háskólann á Akureyri
  • Skúli Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og einn greinarhöfunda
  • Catherine Dupré, dósent við Háskólann í Exeter, meðritstjóri og einn greinarhöfunda
  • Umræður

Hlé (15:25-15:35)

Þriðja málstofa (15:35-16:30)

Þátttakendur og greinarhöfundar:

  • Jón Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands
  • Kristrún Heimisdóttir, lögfræðingur
  • Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri
  • Skúli Magnússon, dósent við Háskóla Íslands
  • Þorvaldur Gylfason, prófessor við Háskóla Íslands

Málþingi lýkur kl. 16:30

Málþinginu stýrir Birgir Guðmundsson, dósent við Háskólann á Akureyri