24. apríl 2026 kl. 09:30-14:00
Opnunarviðburður vegna nýrrar Rannsóknamiðstöðvar um málefni innflytjenda við Háskólann á Akureyri
Haldinn verður opnunarviðburður vegna Rannsóknamiðstöðvar um málefni innflytjenda við Háskólann á Akureyri, 24. apríl klukkan 9:30 og 13:45.
Dagskrá
Smellið hér til að nálgast dagskrána á pdf formi
9:30 - 10:00 Kaffi og óformlegt spjall
10:00 - 10:30 Opnunarávörp
- Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor
- Áshildur Linnet, sérfræðingur hjá Félags- og húsnæðismálaráðuneytinu
10:30 - 11:00 Lykilfyrirlestur - Why does migration research matters? Lessons from Germany - Enska
- Dr. Noa K. Ha, Scientific Managing Director, German Centre for Integration and Migration Research DeZIM Institut, Germany
11:00 - 11:30 Kynning á rannsókn - Immigrant women on Iceland´s northern communities - Enska
- Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar kynnir fyrirlesarann
- Dr. Marya Rozonova - Smith, Georgetown University
11:30 - 12:15 Hlé
12:15 - 12:45 Rannsóknarmiðstöðin og hlutverk hennar
- Markus Meckl, prófessor við Félagsvísindadeild
12:45 - 13:45 Pallborðsumræður - rannsóknir á málefnum innflytjenda á Íslandi
Þátttakendur í pallborði
- Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
- Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri
- Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor við Háskóla Íslands
- Valgerður Guðmundsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri
Pallborðsstjórnandi: Áshildur Linnet
13:45 Móttaka
Um miðstöðina:
Rannsóknamiðstöð um málefni innflytjenda við Háskólann á Akureyri (RMI) er þverfagleg rannsóknamiðstöð, sem heyrir undir Hug- og félagsvísindasvið, og stofnuð er í þeim tilgangi að efla rannsóknir á innflytjendamálum og tengdum samfélagsbreytingum á Íslandi. Rannsóknamiðstöðin er sett á laggirnar sem viðbragð við samfélagslegum þörfum og áherslum sem fram koma í Hvítbók í málefnum innflytjenda frá árinu 2024 og í samræmi við hlutverk íslenskra háskóla samkvæmt lögum.
ÖLL VELKOMIN!