Úr vísindum vaxa tækifæri

2. nóvember 2026 kl. 08:30-11:30
Rannsóknarþing Rannsókna- og doktorsnámssviðs

Árlegt rannsóknarþing Rannsókna- og doktorsnámssviðs Háskólans á Akureyri

Úr vísindum vaxa tækifæri er árlegt rannsóknarþing Háskólans á Akureyri þar sem doktorsnemar, fræðafólk og starfsfólk deila rannsóknum, nýsköpun og hugmyndum sem hafa áhrif út fyrir veggi háskólans.

  • Þingið er opið öllum og eru öll áhugasöm hjartanlega velkomin til okkar í HA þennan dag.
  • Áhugasöm eru vinsamlega beðin um að skrá þátttöku sína hér.

Frá vísindum til tækifæra

Á þinginu verður sjónum beint að því hvernig hugmyndir spretta af forvitni, þekking verður að tækifærum og rannsóknir skapa verðmæti fyrir samfélagið.

Markmið þingsins eru meðal annars að:

  • Miðla rannsóknum, þekkingu og nýjum hugmyndum
  • Skapa vettvang fyrir samtal og ný tengsl
  • Vekja athygli á fjölbreyttu rannsókna- og nýsköpunarstarfi
  • Kynna þanng stuðning og þá þjónustu sem Rannsókna- og doktorsnámssvið veitir

Dagskrá

Dagskrá þingsins verður birt hér von bráðar

Við hlökkum til að sjá þig!