Öll velkomin í sálfræðispjallið!
Hvernig er best að bregðast við þegar erfiðar eða hættulegar aðstæður koma upp í skólastarfi?
Í Sálfræðispjallinu að þessu sinni munu Silja Dís Guðjónsdóttir og Ingunn Brynja Einarsdóttir, klínískir atferlisfræðingar, segja frá hlutverki Fagteymis grunnskóla og Menntasviðs Kópavogsbæjar, með áherslu á öryggi, fagmennsku og réttindi barna.
Fagteymið styður við faglega úrlausn þegar krefjandi aðstæður koma upp í skólastarfi. Í Sálfræðispjallinu verður meðal annars fjallað um:
- Hvernig bregðast má við þegar hegðun barns getur skapað hættu fyrir barnið sjálft eða aðra
- Skýra verkferla og líkamleg inngrip þegar nauðsyn krefur
- Réttindi og velferð barna við slíkar aðstæður
- Fyrirbyggjandi og hvetjandi aðgerðir
- Kennslu á færni, stuðningsáætlanir og skráningar sem geta dregið úr hættu á endurteknum atvikum
Silja Dís og Ingunn Brynja verða einnig með sýnikennslu á helstu varnarviðbrögðum sem miða að því að efla öryggi starfsfólks og nemenda.
Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Samtök um atferlisgreiningu á Íslandi (SATÍS) og Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar.
Markmiðið er að miðla hagnýtri þekkingu sem getur stuðlað að auknu öryggi, faglegum vinnubrögðum og bættri líðan í skólastarfi.
Fyrirlesarar
Silja Dís Guðjónsdóttir

Silja Dís er klínískur atferlisfræðingur á menntasviði Kópavogsbæjar. Hún hefur starfað frá árinu 2022 við ráðgjöf og stuðning vegna barna og ungmenna með hegðunarvanda, með áherslu á að styðja skóla og foreldra í að beita gagnreyndum aðferðum. Silja hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum og ungmennum.
Silja hóf störf á leikskóla á ungum aldri og starfaði síðar með einstaklingum með geðfatlanir. Í meistaranámi í hagnýtri atferlisgreiningu aflaði hún sér fjölbreyttrar starfsþjálfunar hjá farteymi Reykjavíkur, í Urriðaholtsskóla, Arnarskóla og á Sálstofunni. Í starfi sínu leggur Silja áherslu á virknimat til að greina áhrifaþætti hegðunar og tengsl hennar við umhverfið. Hún vinnur náið með teymum barna að því að efla jákvæð samskipti, bæta náms- og félagslegt umhverfi og fyrirbyggja krefjandi hegðun.
Silja er verkefnastjóri fagteymis um réttindi og velferð barna og hefur leitt innleiðingu Beanfee hugbúnaðarins í Kópavogi. Hún sinnir einnig ráðgjöf, handleiðslu og fræðslu og leggur áherslu á samstarf og stuðning við fullorðna í umhverfi barnsins.
Ingunn Brynja Einarsdóttir

Ingunn Brynja er klínískur atferlisfræðingur með vottun frá ICE-ABA og BACB. Hún hefur starfað í rúmlega 23 ár með börnum og ungmennum með alvarleg hegðunar- og þroskafrávik.
Ingunn starfaði í rúm sex ár á leikskóla sem deildarstjóri sérdeildar fyrir fötluð börn. Í kjölfarið var hún deildarstjóri stoðþjónustu í almennum grunnskóla í eitt ár áður en hún hóf störf sem deildarstjóri í Arnarskóla við opnun skólans 1. september 2017.
Ingunn hefur gegnt ýmsum störfum innan Arnarskóla og starfar í dag sem yfiratferlisfræðingur ráðgjafarmála. Hún hefur til margra ára sinnt ráðgjöf og handleiðslu fyrir foreldra og starfsfólk í leik- og grunnskólum. Undanfarin ár hefur hún jafnframt verið hluti af ráðgjafarteymi Kópavogsbæjar fyrir hönd Arnarskóla. Auk þess hefur Ingunn sinnt fræðslu, handleiðslu og setið í fagteymi sem fjallar um réttindi og velferð barna í Kópavogi.
Öll velkomin!