Samfélagsleg áhrif laganáms á Akureyri

20 ára afmælismálþing Lagadeildar HA

Lagadeild Háskólans á Akureyri efnir til málþings í tilefni af 20 ára afmælis deildarinnar þann 22. mars n.k. frá kl. 8:30- 12:30 í Hátíðarsal háskólans. Málþinginu verður einnig streymt hér.

Markmið málþingsins er að heiðra þau sem lögðu grunninn að velgengni deildarinnar ásamt því að dreifa þekkingu á þeim lagarannsóknum sem fræðimenn við Lagadeild HA eru að stunda. Bæði fyrrum og núverandi kennarar og stúdentar, ásamt öðrum sem hafa tengsl við Lagadeildina eða almennt við laganám á Íslandi, munu halda kynningar um ýmis lögfræðileg álitaefni á málþinginu.

Dagskrá

08:30 Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri
Setning málþings 

08:40 Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
Forsetinn og stjórnarskráin – sjö árum síðar

09:00 Berglind Ósk Guðmundsdóttir, alþingismaður
Frá laganámi til lagasetningar

09:15 Júlí Ósk Antonsdóttir, aðjúnkt við Lagadeild og landsréttarlögmaður
Réttindi brotaþola

09:30 Birna Ágústsdóttir, sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Stafræn vegferð hins opinbera - hvers ber að gæta?

09:45 Aðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur og blaðamaður
Blaðamennska í óvinveittu lagaumhverfi - um lög og venjur sem hamla daglegu starfi blaðamanna á ritstjórnum landsins

10:00 Rachael Lorna Johnstone, prófessor og deildarforseti Lagadeildar
Pallborðsumræður 

10:25 Kaffihlé

10:45 Mikael Karlsson, heiðursgestur, prófessor í heimspeki og fyrrverandi forseti Félagsvísinda- og lagadeildar HA
Ræða heiðursgests - Um tilgang lagamenntunar

11:05 Nökkvi Alexander Rounak Jónsson, stúdent í framhaldsnámi við Lagadeild HA
Persónulegt laganám í hjarta Akureyrar

11:20 Ingólfur Friðriksson, deildarstjóri Evrópumála á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins
Áhöld um innleiðingu bókunar 35 við EES-samninginn - Frumvarp til laga um breytingar á lögum um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993

11:35 Rachael Lorna Johnstone, prófessor og deildarforseti Lagadeildar 
Heimskautaréttur eftir innrás Rússa í Úkraínu

11:50 Sara Fusco, doktorsnemi við Háskólann í Lapplandi og fyrrverandi LLM stúdent við HA
Eignarréttur frumbyggja á landi sínu út frá sjónarhóli stjórnskipulegrar umhverfisverndar

12:05 Valgerður Guðmundsdóttir, lektor við Lagadeild
Pallborðsumræður

Öll vekomin!

Áður kom fram að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, tæki þátt í afmælisþinginu en hún hefur boðar forföll.