South Korean Popular Culture and Global Influence

<span class="month">25</span>nóv. <span class="time">kl. 12:00-13:00</span>
Opinn gestafyrirlestur Karolė Miuller

South Korean Popular Culture and Global Influence

Miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12–13 flytur Karolė Miuller gestafyrirlestur í stofu M101 við Háskólann á Akureyri. Erindið verður flutt á ensku.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um vaxandi vinsældir suður-kóreskrar dægurmenningar á heimsvísu og hvernig hún hefur haft áhrif á alþjóðlega ímynd Suður-Kóreu.

Sjónum verður meðal annars beint að K-pop, kóreskum sjónvarpsþáttum (K-dramas), Hallyu-bylgjunni, ímyndarsköpun þjóða og mjúku valdi (soft power). Skoðað verður hvernig suður-kóresk dægurmenning hefur þróast úr því að vera fyrst og fremst afþreying yfir í að verða mikilvægt tæki til menningarlegra áhrifa, alþjóðlegra samskipta og efnahagslegrar kynningar.

Með dæmum úr tónlist, sjónvarpi, kvikmyndum, matarmenningu, snyrtivöruiðnaði, tísku og ferðaþjónustu verður fjallað um hvernig ólíkir þættir nútímamenningar Suður-Kóreu stuðla að sterkri og auðþekkjanlegri ímynd landsins á alþjóðavettvangi.

Einnig verður samband afþreyingariðnaðarins, stjórnvalda, viðskiptahagsmuna og alþjóðlegrar neyslu á kóreskri menningu skoðað með gagnrýnum hætti. Leitast verður við að svara því hvernig og hvers vegna Suður-Kórea hefur orðið að svo áhrifamiklu menningarlegu vörumerki.

öll velkomin!