Tækifærin leynast á samfélagsmiðlum

Tanja Ýr flytur erindi á Framtíðardögum

Öll velkomin á opinn fyrirlestur á Framtíðardögum

Tanja Ýr Ástþórsdóttir mun fjalla um tækifærin sem leynast á samfélagsmiðlum.

Fyrirlesturinn fer fram í stofu M101 og verður einnig streymt frá honum hér.

Á samfélagsmiðlum geta verið ýmis skemmtilegt tækifæri sem geta opnað margar dyr fyrir þá aðila sem vilja auðvelda sér með fleiri atvinnutækifæri eða jafnvel starfa á samfélagsmiðlum eða við samfélagsmiðla. Í erindinu mun Tanja Ýr fjalla um þau tækifæri sem hafa opnast hjá henni á síðustu 10 árum ásamt því að sýna þátttakendum þau tól og tæki sem samfélagsmiðlar bjóða upp á. Með það að markmiði að þátttakendur geti sjálfir nýtt sér þessi tækifæri.

Hver er Tanja Ýr?

Ég byrjaði minn feril á samfélagsmiðlum árið 2014 og hef eingöngu unnið við það síðan. Ég hef á þessum árum skapað mér algjöra sérþekkingu á því hvernig hinir ýmsu miðlar virka og hvernig við getum notað þá til þess að ná árangri á allskonar hátt. Á þessum árum hef ég stigið í öll möguleg hlutverk en ásamt því að hafa sjálf byggt, viðhaldið og haft tekjur á samfélagsmiðlum þá hef ég unnið náið með bæði áhrifavöldum og fyrirtækjum. Ég hef aðstoðað áhrifavalda við að koma sér á framfæri, byggt upp ímynd og kennt þeim að afla sér tekna. Með fyrirtæjum hef ég stigið inn sem sérfræðingur á samfélagsmiðlum og veitt ráðgjöf eða séð um miðla og búið til herferðir með áhrifavöldum.

Í gegnum tíðina hef ég bæði byggt upp fjölda vörumerkja sjálf, nær einungis í gegnum samfélagsmiðla og hjálpað tugum fyrirtækja að byggja upp sterka ímynd, vekja athygli og selja vörur eða þjónustu á mörgum mismunandi miðlum.

En þar liggur helsta ástríða mín í dag, 10 árum seinna, að miðla minni reynslu og sérþekkingu um samfélagsmiðla, vefsíðugerð, myndefni og vörumerki. Í erindi mínu mun ég sýna þér hvernig þú getur sjálf eða sjálfur lært að nota þessi tæki fyrir þig eða þitt vörkumerki.

Öll velkomin!