Vetrarbrautskráning 2024

Vetrarbrautskráningarathöfn Háskólans á Akureyri 2024

Vetrarbrautskráning Háskólans á Akureyri fer fram í annað skipti í Hátíðarsal háskólans laugardaginn 17. febrúar 2024. Athöfnin er ætluð kandídötum sem fengu brautskráningarskírteini sín í október 2023 ásamt febrúar kandídötum 2024.

Athöfnin fer fram með hefðbundnu sniði í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri og eftir athöfn er boðið til móttöku með kaffi og sætum bita.

Skráningu í athöfn er lokið, ef þú gleymdir að skrá þig getur þú haft samband við Sólveigu Maríu (solveigmaria@unak.is).

Dagskrá

  • Kl. 14:00-15:00 Brautskráning kandídata 2024 og brautskráðra í október 2023
  • Kl. 15:00-15:15 Myndataka
  • Kl. 15:00-15:30 Móttaka með kaffi og sætum bita

Gott að hafa í huga

ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ TÍMAMÓTUM, VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!