Vetrarbrautskráning 2026

14. febrúar 2026 kl. 14:00-15:30
Brautskráning febrúar kandídata og þeirra kandídata sem fengu brautskráningarskírteini sín í október 2025

Vetrarbrautskráning Háskólans á Akureyri fer fram í Hátíðarsal háskólans laugardaginn 14. febrúar 2026. Athöfnin er ætluð kandídötum sem fengu brautskráningarskírteini sín í október 2025 ásamt febrúar kandídötum 2026. Athöfnin fer fram með hefðbundnu sniði í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri og eftir athöfn er boðið til móttöku með kaffi og sætum bita.

Skráning

Mikilvægt er að kandídatar skrái þátttöku sína og gesta. Lokað hefur verið fyrir skráningu, ef þú gleymdir að skrá þig getur þú haft samband við Sólveigu Maríu viðburðastjóra hátíðarinnar í gegn um netfangið solveigmaria@unak.is 

Dagskrá

  • 14.00-15.00 Brautskráning kandídata 2026 og brautskráðra í október 2025
  • 15.00-15.15 Hópmyndataka
  • 15.00-15.30 Móttaka með kaffi og sætum bita

Gott að hafa í huga

ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ TÍMAMÓTUM, VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!