Laust starf: Umsjónarmaður húseigna og búnaðar

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa til umsóknar 100% ótímabundna stöðu umsjónarmanns húseigna- og búnaðar. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri fjármála og reksturs. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Undirbúningur og frágangur kennslu og fundarrýma
  • Umsjón og eftirlit með húsnæði, munum og lóð háskólans
  • Aðstoð við nemendur og starfsfólk
  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Reynsla og þekking af hússtjórnar- og aðgangsstýrikerfum er æskileg
  • Reynsla af notkun verkbeiðnakerfa
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á Íslensku og ensku máli
  • Hreint sakavottorð er skilyrði
  • Bílpróf er skilyrði
  • Gerð er krafa um vammleysi, gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist eðli og ábyrgð starfsins

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jón Steindór Árnason, Sviðsstjóri fjármála og reksturs, tölvupóstur: jonsteindor@unak.is. 

Sækja um starf