Laust starf: Verkefnastjóri við Upplýsingaþjónustu og bókasafn Háskólans á Akureyri

Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar fullt starf verkefnastjóra þjónustudeildar við Upplýsingaþjónustu og bókasafn Háskólans á Akureyri. Við leitum að metnaðarfullum og fjölhæfum verkefnastjóra sem er jákvæður og sveigjanlegur og á auðvelt með að vinna í hóp. Starfið er fjölbreytt og krefjandi með áherslu á kennslu og fræðslu í upplýsingalæsi, þar á meðal ábyrga og markvissa notkun gervigreindar, rannsóknarstuðning og þróun þeirrar þjónustu við stúdenta og starfsfólk háskólans. Verkefnastjóri sér einnig um skráningu rannsóknarafurða starfsmanna háskólans í IRIS (Icelandic Research Information System) og tekur virkan þátt í samstarfi starfsfólks á sínu sviði og stefnumótun og umbótastarfi upplýsingaþjónustu og bókasafns.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð á háskólasvæðinu á Akureyri. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Upplýsingaþjónustu og bókasafns.

Starfið er tímabundið til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir kennslu og fræðslu í upplýsingalæsi fyrir stúdenta, doktorsnema og rannsakendur
  • Skipuleggur námskeið og þróar kennsluefni og leiðbeiningar, þ.á.m. á vef
  • Hefur yfirumsjón með og þróar rannsóknarþjónustu bókasafnsins fyrir m.a. rannsakendur og doktorsnema
  • Veitir sérhæfðan stuðning við heimildaöflun, upplýsingaleit og notkun gervigreindar og vísindalegra gagnasafna
  • Veitir ráðgjöf um opin vísindi (e. Open Science), þ.á.m. útgáfuferli og sýnileika rannsóknarniðurstaðna í opnum aðgangi, o.fl.
  • Hefur yfirumsjón með skráningu rannsóknarafurða í IRIS rannsóknarkerfið
  • Veitir almenna upplýsingaþjónustu og þjónustu við notendur eftir því sem við á
  • Tekur þátt í faglegu samstarfi, starfshópum og verkefnum innan og utan háskólans

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Menntun í bókasafns- og upplýsingafræði er æskileg.
  • Háskólapróf á meistarastigi sem nýtist í starfi er kostur.
  • Kennslureynsla og próf í kennslufræði til kennsluréttinda er kostur.
  • Þekking eða reynsla af rannsóknum og/eða rannsóknarstuðningi er kostur.
  • Þekking og reynsla af háskólaumhverfi er æskileg.
  • Skipulögð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund og góð samskipta- og samstarfshæfni eru mjög mikilvæg.
  • Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Mjög góð færni í notkun upplýsingatækni og stafrænna verkfæra.
  • Góð færni í íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Kynningarbréf þar sem fjallað er ítarlega um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Astrid M. Hoddevik Magnúsdóttir, forstöðumaður Upplýsingaþjónustu og bókasafns, tölvupóstur: astrid@unak.is og sími: 460 8051.

Sækja um starf